Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1925, Side 40

Skinfaxi - 01.03.1925, Side 40
10 SKINFAXI fangsefnum félaganna og mótið einskonar hæstaréttar- dómur þeirrar menningargreinar. Enn fremur sýria þau, hvernig ungmennafélagar stjórna fjölmennuin mannfundum og má raunar ekki lítið al' þvi marka, t. d. það, hversu vel ungmennafelagar muni vera til foringja fallnir. Margt er það fleira, senr gestsaugað sér á mótum þessum, og gefur tilefni til þess að spá um framtíð lands og þjóðar, sem innan stundar á að hvíla í skauti hinnar vaxandi kynslóðar. Framar Öllu verða það siðgæðismálin, sem fá menn til þess að dreyma, þvi að þau eru kjarni hins sanna manndóms, og við þau hlýtur framtíðarstefnan að miðast, „þi’oski og göfgi sjálfra vor“. petta á að vera fyrsta og æðsla boðorð ungmennafélagnna. Hvað sýna íþróttamótin? pau sýna, að það er nauðsyn að fólkið eigi sina hátið- isdaga og að þeir hafa oft orðið að góðu liði, og tæp- ast verður með sanngirni fundið að íþróttamótum ung- mennafélaga í sumum héruðum landsins. En hinu verð- ur elcki neitað, að hættulegir þverbrestir eru sumstað- ar á þessari starfsemi, sem eru með öllu óþolandi. Hvað veldur? pað er vínið. Óaldarlýður liinna stærri kaup- staða flykkist á íþróttamótin, þegar bilarnir gela borið hann þangað. Annars er hann eklci ferða fær. pessi lýður flýtur vínið með sér, og á þann hátt svívirðir hann stefnuskrá ungmennafélaganna og gerspillir gleði þeirra. — Merkur ungmennafélagi, úr uppsveitum Ár- nessýslu, talaði um vínhneykslið á íþróttamótum. Hann segir meðal annars: „Álfaskeið hefir verið samkomu- staður okkar ungmennafélaga nú um allmörg ár, og við höfum vandað til skemtananna þar eftir bestu föngum, enda hafa þær náð almenningshylli og sveil- irnar okkar hlotið heiður og ánægju af þeim. pær hal'a farið vel fram vegna þess, að þser voru lausar við ófögn- uð vínsins. En þegar akfær vegur kom svo nærri Álfa- skeiði, að óvalinn utansveitarlýður gat fjölment á mótinu okkar, þá var asninn leiddur í herbúðirnar;

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.