Skinfaxi - 01.03.1936, Side 5
SKINFAXI
5
sér að atvinnulífi landsmanna með fullri athygli og
fullum krafti. Ungmennafélög sjóþorpanna verða að
taka með virkri festu þátt i baráttu æskunnar fyrir
atvinnu og menntun, gegn atvinnuleysi og böli, sem
þvi fylgir. Þau verða að leita að nýjum atvinnuleið-
um og finna þær; nýju atvinnuskipulagi og skapa það.
Þetta er aðkallandi mál liðandi dags — mál vaxandi
æsku. Málið, sem æska nútímans vill hugsa um og
glima við. Framtið hennar og lif.
En ungmennafélögin eru einkum félög sveitanna. Og
atvinnumál sveitanna þurfa engu síður hressilegra á-
taka nýrrar æsku. Á þeim þarf á skammri stund að
verða sú róttæka bót og breyting, að öll sú æska, sem
vex upp i sveitum landsins komandi áratugi, eignist
þar með fæðingunni lífvænlegt framtíðarstarf, sem
hún getur trúað staðfastlega á, elskað og virt. Sá timi
er úti, að hugga megi sig við liið fornkveðna: „Lengi
tekur sjórinn við“.
Samvinnubyggðir; fjölhreyttari framleiðsla; stór-
aukin ræktun, einkum ræktun og um leið notkun,
grænmetis; kornyrkja. Þarna eru nokkrir fyrstu lið-
irnir í starfsskrá ungmennafélaga næstu árin. Þetta
er sjálfstæðismál þjóðarinnar, framtiðarmál sveita-
æskunnar — lífskilyrði hennar. Og það er menningar-
mál og þjóðernismál um leið. —
—- Eg veit ekki, hvort þú liefir tekið eftir því, fé-
lagi, að nokkur undanfarin hefti Skinfaxa, stefna
að alveg ákveðnu marki: Þvi marki, að fá ungmenna-
félögin i sveitunum til að einbeita orku sinni að við-
reisn sveitanna og landbúnaðarins, staðfestingu æsku-
lýðsins í sveitunum, framtíðarskipulagningu á atvinnu
og menningarskilyrðum sveitafólksins. Að þessu miða
greinarnar um sænsku ungmennafélögin (J.U.F.), sem
ég tel að við ættum að taka oss til fyrirmyndar um
margt. Að því miða greinar Klemenzar á Sámsstöð-
um um kornrækt og Steingríms búnaðarmálastjóra