Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 72

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 72
I 72 SKINFAXl Veit eg, að nokkur hafa gert það með röggsemi, en betur má, ef duga skal. Með harðfylgi og þraut- seigju í þessum málum gætu U. M. F., í samstarfi við skyld félög, hreinsað það óæri og þann svefndrunga, sem almenningsálitið er haldið af. Og ef það fyndi fyrir alvöru vængjatök æskunnar og einbeittan vilja, þá sjáum við til, livort það rumskaði ekki. Eg er ekki grunlaus um, nema að svo geti orðið. Á síðustu árum hefir verið að vaxa sterk bind- indisfylking í skólum landsins. Ekkert er eðlilegra en að hinn menntaðasti hluti þjóðarinnar gerist hér málsvari, þó að venjan hafi fram undir þetta verið gagnstæð. Þess vegna eru djarfar vonir tengdar við bindindisfélög skólanna, að þeim takist í gegnum sína liðsmenn að skapa þá siðmenningu, sem íslend- ingar geta verið stoltir af. Samband bindindisfélaga í skólum er reiðubúið til samstarfs við U. M. F. um þessi sameiginlegu á- hugamál. Og það er mín heitasta ósk, að svo geti orðið í framtíðinni. Verður vonandi tækifæri til að ræða það samstarf nánar. Það er alveg sama, hvort þetta málefni er rætt lengur eða skemur; niðurstaðan verður alltaf sú, að bindindi er nauðsynlegur þáttur í félagsstarfinu. Það er allt, sem mælir með því, en ekkert á móti. Og fyrst það var svo fyrir 30 árum, þá er það eigi sið- ur nú. Og þú æskumaður, sæmd og lieiður þjóðarinnar hrópa til þin að taka með eldlegum áhuga þátt í öllu því starfi, sem bæði beint og óbeint miðar að þvi að útrýma áfengisnautninni. Mundu, að áfeng- ið færir aldrei annað en böl, eymd og óhamingju. Og að framtíðin er liin óskrifaða bók fyrir augliti þínu. Athugaðu, hve áfengið hefir leikið fortíðina grimmilega, hversu það hefir krafizt stórkostlegra fórna og skapað mörgum dapurleg örlög.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.