Skinfaxi - 01.03.1936, Síða 30
30
SKINFAXI
bundna stjórn, og í þriðja lagi er tilgangurinn með henni
að rækta landið og bæta. Hér er um gagnlegan, verkleg-
an skóla að ræða fyrir þjóðina, skóla, sem oss vantar
tilfinnanlega, skóla, sem allir karlar á landinu undan-
tekningarlaust eiga að læra i mjög þarflega landvinnu,
skóla, er styrki og æfi taugar og vöðva þeirra manna,
er eigi hafa vanizt líkamlegri vinnu, skóla, er veiti sjó-
manninum þekkingu á að rækta jarðarblett kringum
liúsið sitt, og glæði áhuga hans á að gera það“.
Tilgangur þegnslcylduvinnunnar var, — í stuttu máli:
1. að „rækta landið og bæta“, og
2. að „rækta og bæta þjóðina, sem byggir landið“.
Öldur þær, er risu af þessari tillögu á næstu árum
á eftir, voru háar og brotnuðu víða. Menn skiptust mjög
í flokka um málið, og er eigi tóm til að rekja það hér.
Málið náði eigi fram að ganga. Þjóðin hafði litla félags-
lega reynslu og skildi eigi, að í tillögu Hermanns heit-
ins lá fólgið kim að miklum gróðri, sem lienni gæti
orðið til farsældar, menningarlega og efnalega. En
Hermann Jónasson var á undan sínum tíma og málið
var flutt a. m. k. þriðjungi aldar of snemma.
II.
í ár, 1936, er liðinn þriðjungur aldar! Margt hefir á
daga þjóðarinnar drifið á þessu tímabili. Heimsstyrj-
öld geysaði í fjögur ár, og nú hefir kreppan þjakað
þjóðunum í sex ár. íslenzka þjóðin slapp of auðveldlega
frá eldskírn stríðsáranna. Kreppan virðist ætla að
kenna henni betur að lifa. Markaður fyrir íslenzkar af-
urðir þrengist víða um lönd. Erlendur gjaldeyrir minni.
Þjóðin verður að búa betur að sínu. — Aukin vinnu-
og véltækni krefst færri vinnuhanda til framleiðslu
þess, sem þjóðin þarf að nota, eða unnt er að selja er-
lendis. — Ör vöxtur þjóðarinnar (c: 1500 manns á ári),
minnkandi ungbarnadauði, lenging meðalaldurs lands-
manna, allt þetta eykur hinsvegar stórum tölu starf-