Skinfaxi - 01.03.1936, Síða 60
60
SKINFAXI
ekki er liægt með þessum fáu línum að fara inn á allt
það svið.
Tilgangurinn með línum þessum er, að lijálpa til
þess, að fjöldinn hafi ekki nokkurn stundlegan frið í
þessum framtaksleysis dvala. Og eg ber það traust til
Ungmennafélaganna, að þau láti lúður sinn gjalla, hátt
og hvellt, þar til alþjóð er vöknuð til stríðs og starfa á
sviði heimilisiðnaðarins. Þar til enginn situr auðum
höndum, sem unnið getur, en allar hendur vinni að ein-
hverju til framdráttar og fegrunar þjóðarheimilinu.
Það dregur úr atvinnuleysinu.
Það eykur þjóðarauðinn.
Það dregur úr skuldum. Það eykur sjálfstæðið.
Það eykur starfslöngun, gleði og vellíðan.
Verkefnin eru nóg; þau eru allt í kring um okkur,
til sjávar og sveita.
Þegar athugaðar eru hreytingar þær, sem orðið hafa
í heiminum síðan um aldamót, og horfur þær, sem nú
cru utanlands og innan, og gerð er samkvæmt því áætl-
un um framtíðina; þá virðist það nokkurnveginn ljóst
— eða miklar líkur séu til — að ekki megi treysta eins
mikið á lífsmöguleika okkar stækkandi þjóðar á kom-
andi tímum, eins og gert hefir verið nú um skeið, af
íiskframleiðslunni. Veldur þar með öðru hin alþekkta
fjarlægð okkar frá neyzlulöndunum, samhliða fátækt-
inni. Hinsvegar áhugi neyzluþjóðanna að afla sjálfar
]>ess, er þær þurfa og skilyrðin eru góð þeirra megin,
sem er nóg fólk og fé, og framleiðslukostnaður okkar
reynist að vera meiri en þeirra, svo að við þurfum að fá
hærra verð fyrir framleiðsluna. En horfurnar um það
eru ekki glæsilegar, með sama framleiðslumagni, eða
auknu. Það gagnar oss þvi ekki, að framleiða mikið, ef
enginn þarf eða vill kaupa af okkur.
Nú er því full þörf á að athuga allar liorfur vel og
athuga hvað til bragðs skuli taka, til þess að sjá hinni
vaxandi þjóð farborða. Verður þá fyrst að opna og