Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 60

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 60
60 SKINFAXI ekki er liægt með þessum fáu línum að fara inn á allt það svið. Tilgangurinn með línum þessum er, að lijálpa til þess, að fjöldinn hafi ekki nokkurn stundlegan frið í þessum framtaksleysis dvala. Og eg ber það traust til Ungmennafélaganna, að þau láti lúður sinn gjalla, hátt og hvellt, þar til alþjóð er vöknuð til stríðs og starfa á sviði heimilisiðnaðarins. Þar til enginn situr auðum höndum, sem unnið getur, en allar hendur vinni að ein- hverju til framdráttar og fegrunar þjóðarheimilinu. Það dregur úr atvinnuleysinu. Það eykur þjóðarauðinn. Það dregur úr skuldum. Það eykur sjálfstæðið. Það eykur starfslöngun, gleði og vellíðan. Verkefnin eru nóg; þau eru allt í kring um okkur, til sjávar og sveita. Þegar athugaðar eru hreytingar þær, sem orðið hafa í heiminum síðan um aldamót, og horfur þær, sem nú cru utanlands og innan, og gerð er samkvæmt því áætl- un um framtíðina; þá virðist það nokkurnveginn ljóst — eða miklar líkur séu til — að ekki megi treysta eins mikið á lífsmöguleika okkar stækkandi þjóðar á kom- andi tímum, eins og gert hefir verið nú um skeið, af íiskframleiðslunni. Veldur þar með öðru hin alþekkta fjarlægð okkar frá neyzlulöndunum, samhliða fátækt- inni. Hinsvegar áhugi neyzluþjóðanna að afla sjálfar ]>ess, er þær þurfa og skilyrðin eru góð þeirra megin, sem er nóg fólk og fé, og framleiðslukostnaður okkar reynist að vera meiri en þeirra, svo að við þurfum að fá hærra verð fyrir framleiðsluna. En horfurnar um það eru ekki glæsilegar, með sama framleiðslumagni, eða auknu. Það gagnar oss þvi ekki, að framleiða mikið, ef enginn þarf eða vill kaupa af okkur. Nú er því full þörf á að athuga allar liorfur vel og athuga hvað til bragðs skuli taka, til þess að sjá hinni vaxandi þjóð farborða. Verður þá fyrst að opna og

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.