Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 29

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 29
SKINFAXl 29 Aðalbjörg Sigurðardóttir, sem bæði voru gestir fund- arins. Að loknum umræðum bauð ritstjóri „Skinfaxa“ mér rúm í ritinu fyrir grein um efni erindis míns. Ákvað eg að taka boðinu og var tilskilið, að greinin skyldi vera tilbúin um miðju þessa mánaðar. En síðan eg kom aftur vestur hingað, liafa miklar annir hindrað framkvæmd þessa áforms. Þrátt fyrir þetta vil eg nú ú siðustu stundu, í fáum dráttum og í bréfsformi, skýra ykkur, kæru ungmennafélagar, frá þessu áhugamáli mínu. Eg mun aðeins stikla á stærstu steinum. Þið, sem eruð ung i anda, lesið i mál milli lína og brúið bil milli brota. I. Árið 1903 bar Hermann heitinn Jónasson frá Þing- eyrum fram á Alþingi þingsályktunartillögu um „að skora á landsstjórnina að leggja fyrir næsta alþingi frumvarp til laga um þegnskylduvinnu á lslandi“. Meginákvæði þessara laga skyldu vera þau „að allir verkfærir karlmenn, sem eru á Islandi og hafa rétt innfæddra manna, skuli, á tímabilinu frá þvi þeir eru 18—22 ára, inna þegnskylduvinnu af hendi........Að þegnskylduvinnan sé í því fólgin, að hver einstakur maður vinni alls 7 vikur á einu eða tveimur sumrum, eftir þvi sem hann óskar, og að vinnan sé endurgjalds- laus að öðru en þvi, að hver fái kr. 0.75 sér til fæðis yfir hvern dag, sem liann er bundinn við nefnda vinnu“. — Þegnskylduvinna þessi skyldi „framkvæmd með jarðyrkju, skógrækt og vegavinnu“, og skyldi lienni stjórnað eftir föstum, ákveðnum reglum, líkt og á sér stað við heræfingar. í greinargerð sinni með tillögu þessari, sagði flutn- ingsmaður: „Það liggur aðallega þrennt til grundvall- ar fyrir henni (þ. e. tillögunni). I fyrsta lagi það, að kenna öllum landsmönnum þýðingarmikla vinnu; í öðru lagi miðar hún að því, að venja þá við reglu-

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.