Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 58

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 58
58 SKINFAXI J'orsteinn Mýrmann: Kornrækt og heimilisiðnaður. Nú viröist vera að færast nýtt líf í Ungmennafélög- in, og að félagsskapurinn sé einráðinn í, að veita nýjum lífrænum straumum inn til sín, þar sem samband Ung- mennafélaganna byrjaði nú í sumar að mynda samband xnilli allra hinna dreifðu félaga hér austanlands, og leggja drög til, að ný mynduðust, með miklu víðtækara slarfssviði en áður hefir þekkzt, undir yfirstjórn sam- bandsins. Að sameina þannig kraftana, og auka viðfangs- efnin, samkvæmt þróun þjóðlífsins, er óefað heillaráð. Eg vil nú bera fram fyrir Ungmennafélögin tvö þjóð- þrifamál, sem hafa hrifið mig nú um tíma, og eg tel að séu við þeirra hæfi, og að þau fengju þar miklu áorkað, ef þar gætu orðið sameiginleg átök um, og þau yrðu nú strax tekin á starfsskrá félaganna. Málin eru: Kornrækt og heimilisiðnaður. Kornræktiu á Sámsstöðum hefir nú sýnt og sannað, að hægt er að rækta margar nauðsynlegar korntegund- ir á landi hér. Þetta er svo þýðingarmikið mál fyrir þjóðina, að beita verður öllum kröftum til að hrinda því í fulla framkvæmd, og það má alls ekki úr hömlu dragast, að þekkingu og þróun á þessu máli sé dreift út á meðal þjóðarinnar. Hugsum oss þann undra aðstöðumun fjárhagslega og lífsskilyrðalega fyrir þessa þjóð, sem lifað hefir í kornlausu landi á annað þúsund ár, ef hún gæti í lok þessarar aldar — eða fyr — framleitt nóg korn handa sér, í landinu sjálfu. Ungmennafélögin ættu hvert i sinu umdæmi, að vekja áliuga á málinu og hvetja vel hæfa og áhugasama félaga sína til náms í kornrækt á Sámsstöðum, og útbreiddu þeir svo þekkingu sína,

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.