Skinfaxi - 01.03.1936, Page 74
74
SKINFAXI
Erik Hirth. Andreas Skásheim.
orýðiiega að sér í íslenzkum bókmenntum, einkum
fornum. Þeir fylgjast af áliuga með málum og atburð-
um liér á landi og skrifa oft í norsk landsmálablöð
um málefni íslenzkra U. M. F. Er þess skeinmst að
minnast, að Skásheim skrifaði merka grein i „Gula
tidend“ um islenzku ungmennafélögin, í sambandi
við 25 ára afmæli þeirra 1931, og Hirth i sama hlað
um Skinfaxa, þegar 25. árgangi hans lauk fyrir ári.
— Þeir eru báðir meðal forgöngumanna að fjársöfn-
un þeirri, sem hafin er í Noregi, til þess að reisa
Snorra Sturlusyni minnisvarða í Reykholti, i þakkar
skyni fyrir þá stórmiklu þýðingu, sem hann liefir liaft
fyrir norska þjóð. Hirth er í minnnsvarðanefndinni,
en Skásheim er gjaldkeri hennar og sá, sem aðal-
störfin lenda á.
Erik Hirth er kennari við barnaskóla í Björgvin,
en er ættaður frá Voss og á þar bú og dvelur þar í
sumarleyfum. Hann hefir unnið mjög mikið starf fyr-
ir norsku ungmennafélögin og „Vestlandske mállag“,
oglátið þjóðernishreyfinguna norsku mjög til sín talca.