Skinfaxi - 01.03.1936, Síða 26
26
SKINFAXI
smitberum í þessum efnum verður að halda strang-
lega utan íþróttastarfseminnar.
Óbeinir dómar hafa nú þegar margir fallið íþrótta-
hreyfingunni i vil, frá hærri stöðum. Hefir hið opin-
bera á ýmsan liátt mjög myndarlega styrkt starf-
semina á undanförnum árum. Kominn er nú skóli
fyrir íþróttakennara á Laugarvatni, sem lofar góðu,
þótt hann sé ennþá á byrjunarskeiði. Framför í skól-
unum er auðsæ, i fimleikum og öllu, er að líkam-
legu uppeldi lýtur. Sundlaugar eru nú byggðar víða
um land, og í Reykjavík er byggt ágætt liús til iþrótta-
iðkana, sem hefir öll skilyrði til þess að góður á-
rangur náist af kennslunni. Ennfremur hefir bæjar-
sjóður Reykjavikur og ríkisstjórn styrkt atvinnulausa
unga menn á þessum vetri til iþróttaiðkana. Þetta
eru allt ákveðnir dómar þeirri hreyfingu í hag, sem
hafin var laust eftir aldamótin síðustu.
Það hefði lika xnátt takast meira en slysalega til,
ef þeir liefðu orðið á annan veg. Af vorri eigin sögu
sjáum vér Islendingar, að manndómur allur og margs-
konar menning var hér i mestum blóma, þegar lík-
amsíþróttir voru að al barnalærdómurinn. (Sbr.
Björn Bjarnason: Iþróttir fornmanna).
IV.
Ef iðkun leikja, fimleika og íþrótta á að ná til-
ætluðum árangri, þeim, að gera mennina að þrek-
djörfum mannkostamönnum, er eigi einasta nauð-
synlegt, að öll starfsemi, sem að þessum fræðum
lýtur, sé að miklu leyti studd og borin uppi af hin-
um eldri og reyndari, heldur sé örugg leiðsögn og
nákvæm kennsla i hverri einstakri íþrótt, sem lögð
er stund á.
Skrift er íþrótt. Sjálfsagt þykir, að kenna skrift,
og hver skrifandi maður veit, að til þess að verða
góður skrifari og skrifa fagra rithönd, þarf í fyrstu