Skinfaxi - 01.03.1936, Síða 42
42
SKINFAXI
gjöldum honum þakkarskuld vora með því, að sanna
með verkum vorum, að luttugasta öldin hafi líka átt
sina afreksmenn.
Blönduósi í janúar 1936.
Rannveig Þorsteinsdóttir:
Glímufélagið Ármann 30 ára.
Á þessu ári má segja, að
séu tímamót minninganna.
Fyrir 30 árum voru settir leið-
arsteinar við í sjálfstæðis- og
framfarabaráttu Islendinga.
Þessir leiðarsteinar eru stofn-
un æskulýðsfélaganna: Ung-
mennafélags Akureyrar, á Ak-
ureyri, og Glímufélagsins Ár-
manns, í Reykjavík.
Það er engin tilviljun, að
þessi tvö félög eru stofnuð
samtímis. Það er tákn tímanna.
Stofnun þessara félaga var
einskonar viðurkenning æsk-
unnar á því, að nú hefði hún hafið sjálfstæðisbar-
áttuna, og undirskrift samnings um það, að hætta
ekki fyr en fullum sigri væri náð.
Sjálfstæðisbaráttan fyrir 30 árum, ekki aðeins með-
al íslendinga, heldur og annarra þjóða, er háðu svip-
aða haráttu, stefndi mikið að því, að vekja upp og
halda við því, sem hver þjóð átti sérstæðast og sér-
kennilegast fyrir menningu sína á undanförnum öld-
um. Það var þessi hlið sjálfstæðisbaráttunnar, sem
Glímufélagið Ármann tók upp, og félagið setti sér
Rannveig Þorsteinsdóttir.