Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 56

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 56
56 SKINFAXI vil benda hér á leið, sem að vísu er ekki til stórra átaka eða framkvæmda. En eg vil þó benda á hana vegna þess, að mér virðist, að hún muni notadrjúg og farsæl, auk þess sem hún er engu ungmennafélagi ofvaxin, er við hæfi allra. Enda eru það ekki alltaf stærstu áætlanir eða áform, sem verða happa- eða notadrýgst, þegar til framkvæmda kemur. Eg hygg, að betra sé að fara hægt af stað, herða síðan starf og huga til meiri og stærri átaka. Nýbýlingurinn, sem tekur land til ræktunar og reisir nýtt býli, þarf margt að starfa. Hann þarf samtimis að byggja yfir fjölskyldu sína og bústofn. Hann þarf að rækta tún, gera vegi og fleira. Allt þetta verður að vinna meira eða minna samtímis. Það er óhemju mikið starf og kostnaðarsamt. Og þrátt fyrir hin góðu nýbýlalög, þrátt fyrir þann beina og óbeina styrk, sem þau veita nýbýlingunum, þá mun þó mörgum verða erfitt að koma þessu öllu i gott horf án frekari hjálpar. En hér geta ungmennafélögin komið til mikillar og hag- kvæmrar hjálpar, og er eg þá kominn að því, á hvern hátt þau geti unnið nýbýlamálinu gagn. Eg hefi liugsað mér það þannig, að félögin lijálpi ný- býlingunum til við starfið, og mætti það lielzt verða á þann hátt, að félagarnir störfuðu einn dag eða fleiri hjá hverjum nýbýlingi. Að þeir lijálpuðu honum t. d. við aðflutning á byggingarefni, túngerð, vegagerð eða annað það, er bezt þætti henta í hvert sinn og á hverjum slað. Gætu ungmennafélagarnir starfað saman í smá- fcópum eða allir samtímis, eftir því sem bezt henlaði í það og það skiplið. Þetta ætti eftir atvikum að vera árlegur og fastur liður í starfsemi félaganna, þannig, að þau störfuðu t. d. einn eða tvo daga á ári hjá hverjum frumbýling fyrstu 3—5 frumbýlingsár hvers. Með þessu móti rétta ungmennafélögin nýbyggjunum mjög góða og hagstæða hjálparhönd, því eg geri ráð fyrir, að þetta sé hjálparstarf án endurgjalds frá frum-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.