Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 70

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 70
70 SKINFAXI því að það eru tæki, sem hafa varanlegt gildi í barátt- unni gegn áfenginu. Sem þjóðrækinn félagskapur verða U. M. F. að berj- ast gegn áfenginu. Því að vissulega stafar sjálfstæði þjóðarinnar eigi svo lítil hætta af þvi, þegar áfengis- kaupin á einu ári eru orðin 3,5 milj. króna. Og það meira að segja á hinum erfiðustu og verstu tímum, þegar þjóðin verður að neita sér um margskonar nauð- synjar og búa við meiri kyrrstöðu en eðlilegt er. Þegar slíkur ofvöxtur er lcominn í áfengiskaupin, að þau eru á móts við veltu þjóðarbúsins, þá verð- ur ástandið vart þolað af nokkrum þjóðhollum manni. Þó er það miklu minna en hið óbeina tap af áfengis- nautninni, sem kemur fram á þegnunum, en verður hvorki mælt né vegið né i tölum talið. Þess vegna verður aukin rotnun þjóðfélagsins, með vaxandi áfengisnautn, ekki reiknuð í sömu einingum og áfengismagnið. Vegna menningarbaráttu sinnar verða U. M. F. að vinna fyrir bindindi, og jafnliliða því, sem þau eiga að krefjast þess af félögum sínum, ber þeim skylda til að reka viðtæka fræðslu, bæði i félögunum og með- al almennings, um skaðsemi áfengis, og fylgjast vel rrieð öllu, sem er að gerast i þessum málum, og vinna á allan hugsanlegan hátt að aulcnu bindindisstarfi. Eitt af meginhlutverkum U. M. F. er að stjórna skemmtanalífi æskunnar. Hver ungur maður býr yfir mikilli gleði, sem þarfnast útrásar og leitar fullnægju. Það eru atvikin ein, sem oftast verða því valdandi, á hvern hátt þetta verður, og teflir þá jafnan um leið um andlegan velfarnað eða ófarnað, i framtiðinni, allt eftir ástæðum, sem orka því, hvort gleðin fær full- nægju á heilsusamlegan hátt, eða hún er ofin í viðjar hættulegs munaðar. Það er U. M. F., að færa þetta inn á réttar brautir og sanna, að gleðin verður ann- arstaðar fundin en við veldisstól Bakkusar. Og það

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.