Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 75

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 75
SKINFAXI 75 Hann hefir rannsakað þjóðbúninga og skrifað um þá merkilegar ritgerðir. Tvisvar hefir hann komið til íslands. Fyrra skiptið 1924, einn þeirra fjögra sendi- manna frá „Noregs ungdomslag“, er þá voru gestir Ungmennasambands Ivjalarnesþings. Aftur kom hann hér með „Mira“-leiðangrinum, sem Norðmenn fóru til Hjaltlands, Færeyja og íslands 1928. Var hann, með prófessor Hannás, aðalhvatamaður þeirrar kynn- isferðar. Andreas Skásheim er bankaritari við Vestlands- bankann í Björgvin, en vinnur auk þess af lifi og sál að æskulýðs- og þjóðernismálum. Hann hefir einnig komið tvisvar hingað til lands. Fyrra skiptið ferðað- ist hann ríðandi um mikinn hluta landsins og kynnt- ist nákvæmlega landi og þjóðarháttum. í síðara skipt- ið sat hann sambandsþing U. M. F. I. 1927 og flutti á því mjög snjallan fyrirlestur um þýðingu Snorra Sturlusonar fyrir Noreg. Þá talaði hann og á sam- fundi U.M.S.K. á Þingvöllum. Hann kom og í Þrasta- skóg í þeirri ferð. Síðan hefir hann hvað eftir annað sent Þrastaskógi trjáplöntur til gróðursetningar, hundruðum saman. Einnig hefir hann sent trjáplönt- ur að Reykholti. Skinfaxi notar tækifærið og flytur þessum tveim- ur ágætu frændum vorum innilegt þakklæti íslenzkra ungmennafélaga, fyrir þann vinarhug, sem þeir hafa sýnt félagsskap vorum og þjóð. Vinátta þeirra og annarra góðra manna meðal frændþjóða vorra er oss xnikils virði. A. S.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.