Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 82

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 82
82 SKINFAXI að vísu í góðu skotfæri, aðeins eina 5—10 metra frá bátnum. En hún er horfin fyr en varir. Aftur kemur hún upp og er nú nær en áður. En tæki- færið gengur þó Ólafi úr greipum. Dýrið er aftur úr augsýn. Þriðja sinn kemur hnísan upp og þá er hún varla lengra frá bátnum en tvær áralengdir eða þar um bil. Byssunni er miðað og skotið riður i höfuð hnísunni, dauða-skot. Fáein augnablik flýtur liún í vatnsskorp- unni, og á meðan er hlaupið undir árar og róið á vett- vang. í sama bili og hún er að sökkva, er unnt að krækja í hana með stjalca og draga að borðstokknum. Síðan er liún dregin upp í bátinn. Skyttan vill gjarnan fá tækifæri til þess að reyna hæfni sína öðru sinni. Hinir félagarnir hafa heldur ekkert á móti því. Og þeir skyggnast um eftir fleiri fórnardýrum. En þeir sjá enga hnísu né annað, aldrei framar þenna dag. Þær höfðu verið heldur nærgöng- ular, vesalingarnir, og forvitnin hafði orðið dýrkeypt einni úr þeirra hópi. Og víst var það von, að þær kærðu sig ekki um fleiri kveðjur þvílíkar. Þær vildu ekki komast í frekari kynni við þessa skæðu óvini. Nú er sem veiðimennirnir séu öllum heillum horfn- ir. Fiskurinn virðist vera flúinn, það litla sem áður virtist vera til. Hann finnst ekki að minnsta kosti. — Þeir halda til lands, enda er nú dagur að kveldi kom- inn. Báturinn brunar inn fjörðinn, inn i vikina. Og sjómennirnir stökkva út úr honum, er hann kennir grunns. Þeir henda fiskunum upp í fjöruna, einum eft- ir annan, og kasta á þá tölu. 60 þorskar! 20 í hlut, og hvalur í uppbót. Verra gat það verið! Þeir halda heim að loknu dagsverki, Grímur og Geir. Ólafur ferjar þá innyfir fjörðinn og flytur aflann, allan fenginn óskiptan. Hann vill ekkert af honum taka. Enda þótt hann eigi sinn þriðjung og meira þó, verður það svo að vera, að hann rær einn heim tómum báti. — Sólin vekur veiðimennina af værum blundi eftir

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.