Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 85

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 85
SKINFAXI 85 Skipt um skoSun. Ég unni þeim kappa, sem hristi sinn hjör og hlæjandi stríðinu mætti; með bragyrðin meitluð og svifvængjuð svör, — þótt sárbeittri að hjartanu stefnt væri ör, og æðrulaus glaðmála gætti. Mig töfraði sveinninn, sem stýrði frá strönd, og stefndi út á óvissar leiðir. Með stálbrýndum vilja og harðgreiptri hönd, er hugdjarfur sigraði borgir og lönd, og gullfermdi gunnbúnar skeiðir. En útsýnin breikkar við bilið, sem gengst, og breytingum tímarnir valda. Nú finnst mér — þótt margt hafi’ á mörkinni rengst, — sú mynd hafi fastara hug mínum tengst, sem rís ei með rjúkandi falda. Ég hylli þann djarfhug, sem óslitin ár í æfinnar svartnætti gengur, sem berfættur treður með blæðandi sár, um brunahraun mannlífs, við hungur og fár, en er þó hinn óbrotni strengur. Og æskan mig heillar, með ótamda þrá, jafn áttvís, þótt stoðirnar svíki, þótt örbirgð og kúgun sé arfurinn sá, og einasti, að 1 ö g u m, sem ber henni að fá. — Ég veit, að hún vinnur sitt ríki. Jón Þórðarson, frá Borgarholti.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.