Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 96

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 96
96 SKINFAXI lýst geðblæ íslendingsins, þar sem hann situr einn í grænum lundi fjarlægs lands. Heðin Brú: Fastatökur. Hér er komin ný, stór skáldsaga á færeysku máli, framhald af fyrri sögu höf., Lognbrá. Er hér lýst lífinu á færeyskri skútu á veiðiferðum til íslands, „skakinu“ og seigdrepandi áhrifum þess á mannvænlega æskumenn eyjanna. En aðalefni sögunnar er „fastatökur" Högna við sjálfan sig og ást sína, sigrar hans og sættir. Er þessu öllu ágætlega lýst, persónurn- ar skýrar og meitlaðar, stíllinn glæsilegur og frásögnin fjörug og skemmtileg. Útkoma skáldsögu þessarar er mikil atburður í færeyskum bókmenntum. Rauðir pennar. Bók þessi er „safn af sögum, Ijóðum og ritgerðum eftir nýj- ustu innlenda og erlenda höfunda“, — eins konar sýnisbók „rauðra“ bólcmennta. Iioma þarna fram 15 höfundar islenzk- ir, sumir þjóðkunnir, en aðrir óþekktir fyr, og 13 erlendir. Sumt er þarna misheppnað, eins og gengur (ritgerð Kristins Andréssonar t. d. of mikil upptalning erlendra bókaheita til að vera alþýðleg, og saga Halldórs Stefánssonar léleg), en annað mjög prýðilegt, og bókin sem heild ánægjuleg og hress- andi. Þrjár barnabsekur. Skinfaxa hafa borizt þrjár prýðilegar barnabækur. Gæsa- mamma heitir myndabók, með Ijóðum og lögum, er Guðrún Björnsdóttir frá Grafarholti hefir safnað, ljómandi bók. — Andri litli á vetrarferðalagi er skemmtileg og fóðleg barna- saga eftir L. G. Sjöholm, einn þekktasta skólamann Svía, en ísak Jónsson hefir þýtt. — Loks er Dýrin tala, lesbók í dýra- fræði, og hafa þrír þekktir kennarar þýtt hana úr sænsku. Bókin er mjög myndarleg, en þvi miður hafa nokkrar vill- ur slæðzt í hana, leiðinlegar, en fremur meinlausar. Félagsprentsmiðjan.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.