Skinfaxi - 01.04.1945, Blaðsíða 1
Skinfaxi I. 1945.
Daníel Ágústínusson:
Tímamót.
I.
íslendingar standa nú á mikilvægum tímamótum,
sem sagan mun jafnan vitna til. Margra alda bar-
áttu fyrir stjórnarfarslegu frelsi er lokið. Þjóðin var
einhuga. Hún varðveitir minningu þeirra mörgu,
sem fyrr og síðar unnu að frelsi hennar með einum
og öðrum hætti. Þjóðarinnar híður nú sá vandi, að
vernda og efla sjálfstæði sitt. Sýna i verki, að hún
sé ])ess verðug. Nú hefur hún við enga að sakast,
nema sjálfa sig, ef miður fer um eittlivað. Möguleik-
ar landsins eru vissulega miklir, ef þjóðin ber gæfu
til að nota þá til hins itrasta.
II.
Ungmennafélögin liafa sérstaka ástæðu til að fagna
þessum tímamótum. Þau eru til orðin í liita sjálf-
stæðisbaráttunnar og skipuðu sér i upphafi í raðir
þeirra sókndjörfustu fyrir frelsi þjóðarinnar. Þau
minntust þessarar baráttu á síðastliðnu vori með
virkri þátttöku í lýðveldiskosningunum og undirbún-
ingi hátíðahaldanna 17. júní. Yar það í ánægjulegu
samræmi við þá stefnu, sem frumherjar Umf. mörk-
uðu félagsskapnum fyrir tæpum 40 árum.
Þólt þessum áfanga sé náð, er hlutverk Umf. enn
sem fyr mikilvægt, eins og þjóðarinnar sjálfrar. Þau
1