Skinfaxi - 01.04.1945, Blaðsíða 23
SKINFAXl
23
gildi æskunnar. og skapa lienni möguleika til auk-
ins þroska.
Ungmennafélögin fá hér stórt og vandasamt lilut-
verk að vinna. Ef til vill hefur þörfin aldrei verið
meiri lijá ungmennfélögunum á að vinna af alúð og
festu að aukinni ræktun lands og lýðs og einmitt nú,
þegar líður að því, að farið verði að hyggja upp á
hinum andlegu rústum liins mikla liildarleiks, en
ástands- og gullleitartímar styrjaldarinnar eru hjá
liðnir og raunverulegur hversdagsleikinn tekinn við.
En það skilar skannnt að segja, að það þurfi að
stöðva æskuna i sveitinni. Það þarf líka, og einmitt
fyrst og fremst, að skapa henni þar framtíðarmögu-
leika til sæmilegra lífskjara, og jafnframt draga sem
mest úr allri einangrnn, sem mörgum er nú þyrnir i
augum í strjálbýlinu. Það er þetta, sem fyrst og fremst
ber að keppa að.
Hér munu heimavistarskólar sveitanna koma í góð-
ar þarfir. Svo fremi, að þeir séu ekki byggðir upp af
þröngsýnum og værukærum mönnum, sem líta á hana
og unglingafræðslu sem eins konar klausturlíf, er
njóti sín hezt í kyrrþei, fjarri öllu félagsstarfi.
Heimavistarskólinn á ekki að vera klaustur sveit-
arinnar, afskekktur og einangraður frá lífi og starfi
liinna eldri, heldur á hann að vera liinn lífræni tengi-
liður í athöfnum fólksins. Hann á að vera menningar-
miðstöð í miðju dreifbýlinu. Menningarmiðstöð, sem
allir í sveitinni vilja hlúa að og fegra, eflir því sem
föng eru á. Þá mun þess ekki langt að hiða, að í ná-
grenni skólans komi sundlaug sveitarinnar, íþrótta-
völlur, gróðrarstöð og fleira, er fegrar og prýðir og
til nytsemdar má verða.
Þegar barnafræðslunni lýkur og börnin komast yfir
ferminguna, á ungmennafélagið að taka við þeim,
sem nokkurskonar unglingaskóli, með áframhaldandi
þjálfun huga og lianda. Þannig sameinast æskan í