Skinfaxi - 01.04.1945, Blaðsíða 51
SKINFAXI
51
Héðan og handan.
Hólmfríður Björnsdótltir,
ekkja Guðniundar Hjaltasonar átti 75 óra afmæli 24. febrúar
síðastl. Við það tækifæri heimsótti stjórn U.M.F.Í. hana og
færði henni smá penirigagjöf, sem lítinn þakklætis- og vin-
áttuvotl fyrir störf Guðmundar heitins Hjaltasonar i þágu
ungmennafélaganna og þjóðarinnar ailrar. Guðmundur var
einn hinn ástsælasti fyrirlesari og vakningarmaður með þjóð-
inni á fyrstu árum ungmennafélaganna og vann þeim og
stefnu þeirra ómetanlegt gagn. Mun Guðmundur enn mörg-
um i fersku minni. Hann lézt úr spönsku veikinni í janúar
1919, ö5 ára gamall.
Bindindismálasýningin.
Þann 1. febrúar síðastliðinn var bindindismálasýning opn-
uð í Reykjavík, að tilhlutun hinna sömu aðila, sem gefa út
blaðið Eininguna, og var Pétur Sigurðsson ritstjóri þess aðal
forgöngumaður hennar. Sýningin var opin í tvær vikur og
sóttu hana um sex þúsund manns.
Þetta er i fyrsta skipti, sem slik sýning er haldin hér á
landi, og var ekki unnt að fá nein hjálpartæki frá öðruni
löndum, sem neinu nam. Varð því að langmestu leyti að
styðjast við heimagerða lduti. Mörg línurit og myndir voru
Þeir, sem beztar örnefnalýsingar liafa samið, hafa tölusett
örnefnin i lýsingunum í röð cins og þau köma þar fyrir, og
raðað þeim síðan i stafrófsröð aftan við skrána og sett tölu
hvers örnefnis aftan við jiað í listanum. Þannig fæst yfir-
lit yfir örnefni þau, sem i skránni eru, og sá, sem er á hnot-
skóg eftir tiltekinni tegund örnefna, sem hann er að rann-
saka, þarf ekki annað en renna augunum yfir listann, taka
einkennistölu slíkra örnefna og finria hana aftur í skránhi.
Hefur hann þá fundið örnefnin án þess að þurfa að leita þeirra
i allri skránni. Það kostar töluverða fyrirhöfn að gera þessa
lista, ])ví að til þess þarf að skrifa hvert örnefni á sérstalcan
miða, raða þeim síðan í stafrófsröð og rita siðan listann eftir
miðunum. Þess vegna er varla hægt að krefjast þess af hverj-
um safnara, að hann geri skrár sínar úr garði á þennan hátt.
En þeir, sem tíma hafa til, ættu þó að leggja þessa fyrirhöfn
á sig, því að skrár þeirra verða þeim mun dýrmætari, sem
betur er að þeim unnið.
4*