Skinfaxi - 01.04.1945, Blaðsíða 2
2
SKINFAXI
halda áfram að vera þroskaleiðir æskunnar, skóli
hennar til félagslegs uppeldis og samtök ungra manna
og kvenna til framgangs góðum málefnum. En fvrsl
og fremst ber þeim að sinna þeirri köllun, sem Ib-
sen orðar svo: Að vekja þjóðina og fá iiana til að
hugsa hátt. Að þessu vilja þau vinna með víðtæku
iþróttastarfi og þegnskaparvinnu við íþróttamann-
virki. Með skráningu örnefna og verndun þjóðlegra
verðmæta. Með heilbrigðu skemmtanalífi, ])ar sem
þjálfuð leikstarfsemi, söngur og önnur slílc menn-
ingarleg skemmtiatriði skipa öndvegi. Með skógrækt
og fegrun landsins. Með útbreiðslu bindindis og har-
áttu gegn drykkjutízkunni. Með því að glæða skiln-
ing á fögrum bókmenntum. Með þjálfun í fundar-
höldum og rökréttri hugsun. Með því að skapa og
glæða áhuga æskunnar fyrir hollum viðfangsefnum,
og auka trú Iiennar á sjálfa sig og landið, sem hún
á að erfa. Þetta er meginkjarninn i hoðskap ung-
mennafélaganna. Um ])etta vilja þau sameina æsk-
una í landinu. Öllum þjóðhollum mönnum her að
efla ungmennafélögin til þessa starfs.
III.
Það eru einnig tímamót i sögu Skinfaxa. Séra Ei-
rikur J. Eiríksson, sambandsstjóri U.M.E.Í. lætur af
ritstjórn hans með þessum árgangi. Sökum mikilla
anna og vondrar aðstöðu á annan hátt hefur liann
ekki séð sér fært að halda ritstjórninni áfram. Við
henni tekur Stefán Júlíusson, yfirkennari í Hafnar-
firði. Hann er ungur maður. Lauk kennara])rófi 193(5
og stundaði framhaldsnám í Ameriku 1911—1943.
Samhandsstjórnin Iiyggur gott lil starfa lians fvrir
Skinfaxa og fagnar því að hafa fengið hann fyrir
ritstjóra. Þá hefur Skinfaxi breytt nokkuð um svip.
Hefur Ásgeir Júlíusson teiknari gert hina nýju kápu.
Skinfaxi mun leitast við að halda uppi kynningu