Skinfaxi - 01.04.1945, Síða 10
10
SKINFAXI
búninga leikfólksins. Þeir verða einnig að vera þann-
ig, að þeir lijálpi lil að skapa Iiina réltu persónu.
Þeir niega livorki vera of áberandi, svo að þeir taki
um of eftirtekt manna, né heldur á nokkurn hátt
mótstæðir við það, sem leikritið gefur tilefni til. Fal-
legir húningar og l'allegt umhverfi er jafnan fagurt
á að líla, en þess verður að gæta vel, að þetta stang-
ist ekki á við sjálfan sjónleikinn. Of litauðugur eða
skjannalegur kjóll getur t. d. algerlega skemmt álirif-
in af góðu atriði, og eins geta illa sniðin föt orðið
(il að draga úr áhrifum persónu, sem að öðru leyti
er góð á leiksviðinu. Gervið verður að gera sitt til
])ess að skapa þann persónuleik, sem hlutverkið
gerir ráð fyrir.
— Og livað um andlitsmálninguna?
— Uju slíkt gildir sama reglan. Allt verður að
vera í þágu heildarsvipsins. Auðvitað þarf að skerpa
línur í andliti og gera hverjum og einum það gervi,
sem honum hentar hezt. En viðvaningar í andlits-
málningu skyldu fara varlega með litina, scrstak-
lega með rauða og svarta litinn. Ungt fólk þarf ekki
að mála sig mikið, er það leikur ungar persónur,
og það er hreint ekkert atriði, að fólk taki á sig fár-
ánlegt gervi til þess að þekkjast ekki á leiksviðinu.
í þeim efnum her að sjálfsögðu einungis að hugsa
um persónu leiksins. Menn skvldu aldrei gleyma því,
að stærsti þátturinn i sköpun góðrar persónu á leik-
sviði er fólginn í leilc og meðferð málsins. Búningur
og gervi eru svo til þess að undirstrika og hjálpa til.
— Já, það eru nú ýmis fleiri atriði, sem sjálfsagt
væri gagn og gaman að ræða við yður, en sennilega
verður þetta að nægja að þessu sinni.
Já, ég veit nú satt að segja ekki, hvorl mikið
gagn er að slíku tali fyrir leikstarfsemina úti um
landið. En mér þykir samt vænt um að hafa fengið
þetta tækifæri, því að mér er vel ljóst, hvað þarf og