Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1945, Page 32

Skinfaxi - 01.04.1945, Page 32
32 SKINFAXJ þjóða verða að blakía yfir blóðidrifnum vígvöllum, vanhelgaðir af hryðjuverkum ægilegra styrjalda. íslandsfáni er hreinn og flekklaus. Hann var hor- inn fram til sigurs i hinni löngu frelsisharáttu þjóðar- innar. Hann hefur verið vitni djarfra dáða. drenglynd- is og ættjarðarástar, en eklci höls og blóðsúthellinga. Um leið og íslenzkir iþróttamenn <>g æska landsins lyflir fána þjóðar sinnar, gerast þeir verðir hans og alls 'þess, sem þjóðinni er hei’agf. Þeir gerast vcrðir þess arfs, sem gengnar kynslóðir eftirlétu þeim. Og fegurstu einkunnarorðin, sem þeir gætu valið, finnst mér vera kveðjuorð Kolskeggs lii æltjarðarinnar: „Hvorki mun ég á þessu níðasí né öðru þvi, sem mér er tiltrúað." Útvarpskvöldvaka U.M.F.f. Þann 2. iles. s.l. hafði Ungmennafélag íslands kvöldvöku í útvarpinu. Efni hennar var á þessa leið: Daníel Ágústínus- son ritari U.M.F.I. flutti ávarp. Gestur Andrésson hreppstjóri á Hálsi flutti ræðu um gildi Umf. ogl áhrif fyrr og siðar. Iírist- ján Eldjárn inagisCer ræddi um örnefnaskráningu Umf. Gils Guðmundsson rithöfundur flutli kvæði eftir Guðmund Inga. Þorsteinn Einarsson iþróttafulltrúi ræddi um íþróttastarfsemi Umf. Jóhannes skáld úr Kötlum flutti kvæði sitt: Góðra vina fundur, sem er um þá vinina, Aðalstein Sigmundsson og Simun av Skarði, er létust með skömmu millibili, svo sem kunnugt er. Sigríður Ingimarsdóttir stúdent flutti erindi um viðhorf kvenna til Umf. Karlakór frá Umf. Dreng í Iíjós söng tvisvar undir sljórn Odds Andréssonar, Iiálsi. Útvarpshljómsveitin lék í upphafi, og hljómplötur voru leiknar milli þess að ræður voru fluttar og lesið var upp. Að lokum flutti ritari sambands- ins kveðjuorð. Útvarpskvöld þetta þótti takast prýðilega, og hefur stjórnin fengið mörg vinsamleg ummæli um það frá ungmennafélögum víðsvegar að. Sérsíaka atliygli vakti hinn ágæti kór Umf. Drengs. Væri vel farið, ef mörg Umf. ættu slíkum skemmti- kröftum á að skipa.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.