Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1945, Page 48

Skinfaxi - 01.04.1945, Page 48
48 SKINFAXI fer fjarri, að telja megi örnefnin í belg og biöu. ÞaS er höf- uðnauðsyn, að safnarinn vinni skipulega, afmarki svæðið greinilega, taki fyrst fyrir tiltekinn hlula þess, geri honum full skil, leggi þá undir sig nýja skák og svo koll af kolli. Ilvert örnefni verður að staðsetja eins vel og föng eru á, og er gott, að -skrásetjandinn hafi jafnan i liuga, að skrá hans verður notuð af mönnum, sem ekki eiga þess kost að sjá staðina með eigin augum, en þurfa að fá að vita slcý- laust, hvar livert örnefni er. í sumum þéttbýlum löndum, þar sem jarðirnar eru yfirleitt litlar, gera safnarar örnefna- kort af hverri jörð. í skrám sínum merkja þeir svo livert örnefni einkennistölu og setja sömu tölu á kortið, þar sem örnefnið á heima. Sá, sein skrárnar notar, þarf ekki annað en taka einkennistölu hvers örnefnis og getur þá óðara séð, hvar það er eftir kortinu. Þessa aðferð mætti vitanlega nota hér á landi, sums staðar að minnsta kosti. En það er hvort- tveggja, að engin slílc kort eru til, enda eru jarðirnar hér yfirleitt það víðáttumiklar, að kortin þyrftu að vera flæmi stór til að ná tilgahgi sínum. Yið verðum því að láta okkur lynda, að vera kortlausir og staðsetja örnefnin með lýsing- um, enda má vel við það hiíta, ef skýrt er að orði komizt. Marg er við að miða: bæjarhús, útihús, túngarð, landamerki, ýmis náttúrleg kennileiti og siðasll, en ekki sízt, örnefni, sem merkt kunna að vera á íslandskortum danska herforingja- ráðsins. Ef safnað er í byggðum, er langbezt að safna á hverri jörð út af fyrir sig. Er þá gott að hefja hverja skrá á stuttri, en glöggri lýsingu á legu jarðarinnar, bæjarstæði og landa- merkjum. Ef heimamenn kunna skil á jieim eyktamörkum, sem noluð hafa verið á bænum, er mikils virði, að frá þeim sé skýrt. Þegar þessum almenna inngangi er lokið, getur safnarinn tekið til við örnefnin. Er eðlilegast að byrja á ör- nefnum næst bæ, i túni, þá engjum, úthaga, fjalli, afdöl- um o. s. frv., unz farið hefir verið um alla landareignina og hvert örnefni sltaðsett, eins og kostur er á. Það er mjög mikilsvert, að safnarinn haldi til haga öllum örnefnum söfn- unarsvæðisins og felli ekkert niður, þótt honum virðist það lítilfjörlegt, jafnvel ekki nöfn á einstökum húsum jarðanna, ef þau eru nokkuð fráhrugðin þvi allra hversdagslegasta. Það er raunar satt, að örnefni eru misjafnlega merkileg, en ekkert örnefni er svo óbermislegt, að það eigi ekki skilið að komast i sk'rá, og auk þess vitum við ekki, hvaða örnefni munu þykja merkust og hve.r ómerkust í framtiðinni. Alll

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.