Skinfaxi - 01.04.1948, Blaðsíða 15
SKINFAXI
15
Brunnastöðum og voru fundir þess ávailt haldnir þar
síðan. Sýndi skólanefnd hreppsins félaginu þann vel-
vilja a'ð leigja því slcólahúsið til fundahaldánna. Fyrstu
stjórn skipuðu: Ólafur Guðjónsson, þá kennari barna-
skólans, Egill Hallgrimsson, Vogum, nú kennari í
Reykjavík og Gísli Eiríksson, bóndi, Naustakoti. Ólaf-
ur var mætur maður og styrk stoð félagsins meðan
það naut krafta hans; hann andaðist voi-ið 1909.
Félagið varð brátt fjölmennt og starfsamt, almenn
þátttakan í félagsstarfinu og félagslífið fjörugt og
skemmtilegt.
Þegar ég svo haustið eftir hóf nám í Kennaraskólan-
um í Reykjavík, tóku sæti i stjórn félagsins Þórður
Klemenzson, síðar hóndi i Minni-Vogum (d. 1933),
Ingvar Gunnarsson, Skjaldakoti, nú kennari í Hafnar-
firði, eri Gísli sat áfram.Næsta ár átti Sæmundur Klem-
enzson, nú bóndi í Minni-Vogum, sæti í stjórninni, en
um meðs’tjórnendur hans er mér ekki kunnugt. Næstu
árin voru þessir forvígismenn félagsins og stjórnuðu
])ví mcð miklum áhuga og dugnaði: Kristmann Run-
ólfsson, fyrr kennari, nú hóndi á Hlöðversnesi, Árni
KI. Hallgrímsson, nú lireppstjóri i Vogum og Gísli
Gunnarsson, Skjaldakoti, nú stýrimaður i Reykjavík.
Félagið átti því láni að fagna, að eiga marga fórn-
fúsa félaga, sem báru uppi störf ]iess, þótt nöfn þeirra
allra séu ekki talin hér.
Verður nú i aðalatriðum gerð grein fyrir verk-
efnum þeim, er félagið vann að.
Fundahöld og fyrirlestrar. Fundirnir voru aðalþátt-
urinn i félagsstarfseminni, en þeir voru haldnir tvisv-
ar í mánuði að vetrinum. Fánastöng var komið fyrir
á skólahúsinu og hlakti fáninn við hún meðan fundir
stóðu. Hófust þeir og enduðu mcð söng. Fundir voru
oft fjölmennir og umraéður fjörugar um ýmis mál.
Aðallega var rætt um verndun móðurmálsins, sjálf-
stæðis- og þjóðernismál, hindindismál og skógrækt.