Skinfaxi - 01.04.1948, Blaðsíða 61
SKINFAXI
61
mennasambands Austur-Húnvetninga, stjórnaði dagskráratrið-
unum af hinum mesta myndarbrag. Áfengisneyzlu varð ekki
vart og fullkomin reglusemi ríkti í öllum greinum. Má það til
tiðinda teljast, þegar um jafn fjölmennan og umsvifamikirin
mannfagnað er að ræða.
Fréttaritari Timans á Blönduósi sendi blaðinu itarlegar
fréttir af fræðsluviku þessari, 24. marz og segir þar meðal
annars:
„Er óhætt að segja að skennntivika þessi liafi í alla staði
farið vel og ánægjuiega fram og verið ungmennasambandinu
og forráðamönnum þess til hins mesta sóma. Er það von okk-
ar Húnvetninga og ósk, að slíkar samkomur sem þessar vcrði
endurteknar framvegis, enda mun ætlunin sú hjá ungmenna-
sambandinu.
Að endingu gaf sambandið kr. 1000.00 til barnalijálpar sam-
•einuðu þjóðanna.“
Ummæli þessi eru vissulega ánægjuleg fyrir U.M.S Austur-
Húnvetninga og forvígismenn þess. Það hefur og hér gefið
myndarlegt fordæmi, sem ýmsum öðrum ungmennasambönd-
um myndi sjálfsagt lienta í störfum sínum og verða þeim og
héraði þeirra menningarlegur ávinningur.
Norræn æskulýðsvika að Krogerup.
De danske Ungdomsforeninger hafa boðið fulltrúum frá
ungmennasamböndum allra Norðurlandanna til æskulýðsmóts
að Krogerup lýðháskóla 13.-—20. júní í sumar.
Þar liittast forvígismenn allra hinna norrænu ungmenna-
sambanda og bera ráð sin saman. Margir kunnir fyrirlesarar
verða ræðmnenn á þessu móti. Má þar t. d. nefna Jörgen
Bukdahl rithöfund, Hal Koch prófessor, C. P. O. Christiansen
skólastjóra, Jens Marinus Jensen, formann danska ungmenna-
sambandsins. Af hálfu íslands flytur Bjarni M. Gíslason þar
erindi um Island og Norðurlönd. Önnur erindi, sem þar verða
flutt, eru um æskulýðsmál, livort æskulýðsfélög skuli vera
hlutlaus gagnvart pólitískum og trúarlegum stefnum, norræn
. æskulýðssamvinna, æskan og ríkið, framfaramál sveitanna og
æskulýðsfélögin, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Þá verður farið í ferðalag og liinir liclztu staðir í Kauj)-
mannahöfn og nágrenni skoðaðir.
Af hálfu Ungmennafélags íslands munu þarna mæta sr. Ei-
rikur J. Eiríksson sambandsstjóri, Daniel Ágústinusson, ritari
U.M.F.Í., Daníel Einarsson, gjaldkeri U.M.FÍ. og ungfrú Ásdis
Ríkarðsdóttir, Reykjavik