Skinfaxi - 01.04.1948, Blaðsíða 35
SKINFAXr
35
hlæjandi og kynnir sig'. „Við getum lagt af stað undir
eins, bíllinn er þarna yfir frá.“
Eftir örstutta stund erum við lögð af stað. Hún
ekur mjög vel og léttilega og vill lialda uppi sam-
ræðum.
„Þér komið hér til hrífandi staðar,“ segir hún.
„Vermont er dásamlegur staður á sumrin, en vetrar-
ríki er hér mikið, geysilegar frosthörkur og fannkyngi.
— Þessi fjöll hér um slóðir lieita Grænufjöll, Hvítu-
fjöll eru norðar.“
Mér þykir vænt um að fá þessar upplýsingar. För
mín liingað upp í fjöllin hafði ráðizt svo skjótt, að
ég liafði lítið getað lesið mér til um Vermont. Ég veit
þó, að það er citt minnsta fylki Bandaríkjanna, og
telst til Nýja-Englands-ríkjanna. — Eg á aftur á
móti fullt i fangi með að fylgjast með frásögn frú-
arinnar, því að ég lief aðeins dvalizt tvær vikur vestra
og er því óvanur málinu.
Scu/an um Moreij sldpstjóra.
Ég legg við lilustirnar og reyni að fylgja orðum
liennar sem bezt. Hún heldur áfraíri:
„Þetla vatn, sem við komum nú að, heitir Morey-
vatn. Áfangastaður okkar er við norðurenda vatns-
ins, og ökum við næstum í kringum það. Vatnið er:
nefnt eftir Morey skipstjóra, sem lieima átti hér í
þorpinu fyrir um það bil hundrað og firiimtíu árum.
Sagan segir, að hann liafi smíðað bát einn mikinn
og haft hann liér á vatninu. Skipstjórinn var hugvits-
maður og þetta var tilraunaskip. Ilann hafði flutzt
Iiingað upp i fjöllin lil þess að vera í friði með upp-
finningar sínar.. Hann reyndi að setja gufuvél í bát-
inn. Og eftir margar mislieppnaðar tilraunir tókst
lionum J>að, ög hann var að bíða eftir viðurkcnningu
á verki sínu, er Fulton setti skip sitt, Clermont, á flot
á Hudsonfljótinu. Þegar Morey barst fregnin um, hve
3*