Skinfaxi - 01.04.1948, Blaðsíða 44
44
SKLNFAXI
langt, en varla meira en kílómetri á breidd, þar sem
það er breiðast. Allar liæðir og ásar eru skógi vaxnar
á e'fstu brún, og þó eru ásarnir víða mjög stórgrýttir
og jarðvegur lítill. Skóginn ber liátt við dökkan, al-
stirndan liimininn. Þarna gægist ofurlitil mánasigð
upp yfir trjátoppana í suðri. Dúnalogn er og vatnið
ládautt. Fyrir tveim árum geisaði hér fellibylur.
Morey slcipstjóri.
Stormurinn kurlaði upp skóginn eins og eldspýtur
væri, þar sem bann náði til. Þess vegna eru sýlingar
í skóginn á hæðunum beggja vegna vatnsins, og sjásl
þær greinilega héðan af vatninu. Þar hefur jiessi
ógnvaldur skrúfað upp skóginn, líkt og heljarmikið
hjól Iiefði snúizt j^ar og brotið 'frá sér. Slikir felli-
byljir eru mjög fátíðir hér.
Morey skipstjóri reynist prýðilega, og farþegarnir
eru i sjöunda himni. Vatnið gusast liátt upp frá lijól-
unum, svo og engum blöðum er um það að fletta, að
þetta er reglulegt lijólaskip. Hitl kann j)ó að vera, að
gamla skipstjóranum hefði fundizt heldur l'átt til um
„gufuvélina“, ef hann hefði mátt líta upp úr gröf