Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1948, Síða 31

Skinfaxi - 01.04.1948, Síða 31
SKINFAXI 31 Örn fyllist oft beizkju og leiða, þegar hann er meðal manna og liorfir á misfellur þeirra og þroska- leysi. En á heiðum uppi unir liann sér vel. Þar er frjálsræði og fegurð, óflekkuð og frumstæð. I kvæð- inu Á heiðum uppi bregður fyrir náttúrulotningu og næstum náttúrudýrkun, sem er þó ekki algengt hjá Erni. En þetta fallega kvæði sver sig þó ótvirætt i ættina: Ég nýt liins langa, ljósa dags á leið um eyðifjöM, um hrjósturmela, hraun og urð. Þar hverfa mannsspor öll. Við heiðalandsins helgiró mig hrifning grípur sterk. Hér brýtur ekkert boðorð guðs, liér bletta ei mannaverk. Við yfirgang og ágirnd manns var auðnin sjaldan tengd. Þar eignast fáir öllu meir en eina grafariengd. En ánauðug er öll sú jörð, sem eignarrétti er tryggð, og yrðu fjöllin cyrnamerkt, þá yndi ég kyrr í byggð. Ég nýt hins langa, ljósa dags sem Ijóðs við dýran hátt, sem helgiljóðs um lieiðin fjöll og hljóðrar auðnar mátt. Mín vitund öll og eðlisgerð féll inn í þennan brag. Svo andar kvöldið klokkum hrcim í kvæðis niðurlag. Frh.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.