Skinfaxi - 01.11.1949, Síða 1
Skinfaxi II. 1949.
JJJai Sv
i/eináóon :
ÁVARP TIL ÆSKIJMAB
flutt á landsmóti Ungmennafélags íslands 1949 í Hveragerði.
Til þin, ó æska, horfa hugir nú
í heimi, sem á mergð af gömlum syndum,
því vorið, sem var heitast þráð, ert þú,
og þú ert morgunninn á landsins tindum.
í þínum söng fær ættland okkar mál,
og öll þess blóm á vorsins degi löngum,
í augum þinum fær þess sólskin sál,
þess sumardagar ljóma af þínum vöngum.
Og þú ert sjálf hið sanna ævintýr,
sem sumrin yrkja um daga og bjartar nætur.
í þínum barmi blundar heimur nýr,
þar brumar lim vors stofns með fornar rætur.
Þar tekur nýi tíminn ríki og völd
í trú á lífsins rétt án stríðs og ótta.
Þar gnæfir kirkja Guðs á nýrri öld.
Þar glampa vitar ókominna nótta.
Hin unga mær er íslands hvíta rós
og óskabarn um sumarlanga daga,
þess stjörnubjarta nótt, þess norðurljós
í návist hennar verða líf og saga.
Hún á í framtið göfugt mark og mið
sem móðir hraustra og góðra dætra og sona.
5