Skinfaxi - 01.11.1949, Qupperneq 15
SKINFAXI
79
anísl ^JlcfúilínLiiion :
Landsmótið í Hveragerði.
Undirbúningur.
Sjöunda landsmót Ungmennafélags Islands vai
haldið í Hveragerði dagana 2. og 3. júlí 1949. Fyrsto
landsmót U.M.F.I. var haldið á Akureyri 1909, tvö
næstu í Reykjavík, 1911 og 1914, það fjórða í Hauka-
dal 1940, fimmta á Hvanneyri 1943 og sjötta að Laug-
um í Reykjadal 1946.
Landsmót þetta átti upphaflega að fara frgm að
Eiðum. Vegna óvenjulegrar ótiðar siðastliðið vor
reyndist ekki ldeift að ljúka þar ýmsum undirbúnings-
framkvæmdum. Nokkur hætta var og á því, að hinn
nýi og glæsilegi íþróttavöllur, sem þar er nýlega gerð-
ur, yrði erfiður til notkunar, þar sem allt greri svo
seint.
Var þá horfið að þvi ráði að finna heppilegan stað
á Suðurlandi, því eftir þrjú ár hefði röðin komið að
þvi, og aðstæður þar skárstar, eins og ástatt var í vor.
Hinsvegar var mjög örðugt að fresta mótinu, því mikla
vinnu var búið að leggja i undirbúning þess víðsvegar
um landið, og þessir dagar löngu ákveðnir.
Eftir nokkra athugun varð Hveragerði fyrir valinu.
þegai' kvisturinn, sem þú heldur á í hendinni til gróð-
ursetningar, nýtur himinlofts hreinleikans og sólaryls
kærleikans, þegar við samstillum tökhi til að helga
auðlegð lands oklcar himninum —- þá gerist undrið
mikla.
Þá verður Island Guðs riki.
Þá verður að veruleika það, sem við biðjum í þjóð-
söng okkar: Þroskinn á Guðs ríkis braut.
Guð blessi ungmennafélög Islands og æskulýð.