Skinfaxi - 01.11.1949, Page 21
SKINJFAXI
85
getur mest orðið á Suðurlandi, og er þá mikið sagt.
Hélzt veður þannig fram á kvöld. Völlurinn varð fljót-
lega mjög blautur, svo pollar stóðu í honum hingað
og þangað, og gengu vatnsskvetturnar upp fyrir haus
á keppendunum. Það sást engum bregða við þetta.
Allt hélt áfram samkvæmt áætlun, og aðeins langstökk-
inu var frestað til næsta dags. Má það teljast hreinasta
afrek að láta úrhellisrigningu í margar klukkustundir
ekkert á sig fá. Það er hraust og tápmikil æska, sem
þannig snýst við vandanum, undir öruggri forustu
íþróttafulltrúans. Þessi stórrigningardagur verður
mörgum minnisstæður, og þá sérstaklega unga fólk-
inu, sem stóðst þarna óvenjulega raun. Árangurinn
varð vitanlega minni en ella hefði orðið, en það skipti
ekki svo miklu máli. Hitt var aðalatriðið, að þar komu
fram eiginleikar hinnar sönnu íþróttaæsku: Æðruleysi,
kjarkur og hreysti. Varð engum meint eftir volkið.
Á laugardagskvöldið var skemmt sér við kvikmynda-
sýningu og dans. Var dansað á þremur stöðum til kl.
Á vestra barmi sundlaugarinnar.