Skinfaxi - 01.11.1949, Page 23
SKINFAXI
87
dalssýslu bar sigur úr býtum og hlaut 5 vinninga.
Voru stúlkur þessar úr Stykkishólmi. Hinar sveitirnar
voru frá Héraðssambandi Þingeyinga og Ungmenna-
sambandi Skagafjarðar, er hlutu 3 vinninga hvor, og
Ungmennasambandi Kjalarnesþings, er hlaut 1 vinn-
ing. Leikurinn var fjörugur og keppnin hörð með
köflum.
Iþróttakeppnin á vellinum stóð til hádegis og var
veður sæmilegt, gekk á með smáskúrum, sem enginn
fann fyrir, eftir óveðrið daginn áður. Fólki tók nú
mjög að fjölga og skipti orðið þúsundum, er leið að
hádegi.
Hin fyrirhugaða hátíðardagskrá mótsins hófst kl.
13,30 við pallinn í Laugaskarði, með því að Lúðrasveit
Reykjavikur lék nokkur ]ög, en stjórnandi hennar er
Albert Klahn. Mannfjöldinn safnaðist saman i brekk-
una og á gilbarminn sitt hvoru megin við pallinn.
Fólki fjölgaði mjög ört, og munu um 5 þúsundir
manna hafa verið þar, er flest var. Þarna var fyrir-
huguð 5—6 klst. dagskrá.
Þegar lúðrasveitin hafði leikið nokkra stund, flutti
sr. Eiríkur J. Eiríksson. sambandsstjóri, guðsþjónustu.
Jens Marínus Jensen flytur rje'ðu.