Skinfaxi - 01.11.1949, Síða 29
SKINFAXI
93
Ungmennasambandi Dalasýslu, 2 frá Héraðssambandi
Þingeyinga, 3 frá Héraðssambandinu Skarphéðni, 1 frá
Umf. Keflavíkur og 5 frá Umf. Reykjavíkur, allir
vaskir menn og knáir, flestir nemendur Sigurðar
Greipssonar, nema Reykvíkingarnir hafa lært hjá
Lárusi Salómonssyni.
Þegar allir höfðu glímt, stóðu leikar þannig, að
Einar Ingimundarson frá Umf. Keflavíkur varðist öll-
um keppinautunum. Jafnir voru að vinningum Ármann
Lárusson frá Umf. Reykjavíkur og Rúnar Guðmunds-
son frá Héraðssambandinu Skarphéðni, en sá fjórði
varð Sigurjón Guðmundsson frá Skarphéðni. Ármann
og Rúnar urðu þvi að glima um annað sætið. Gerðust
menn nú spenntir, því úrslitin voru mjög tvísýn. Eftir
stutta og snarpa viðureign bar Rúnar sigur úr býtum
og hlaut því annað sætið og Ármann það þriðja. Fyrr
i glímunni hafði Rúnar legið fyrir Ármanni. Svona
var jafnt með þeim.
Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi fór síðan viður-
kenningarorðum um glimuna og taldi hana þá beztu,
sem hann liefði séð um árabil, einkum fyrri hlutann,
munu margir hafa tekið undir þá skoðun hans. Flestir
voru piltarnir mjög ungir, en glímdu vasklega og af
drenglund.
Að lokum sýndu 12 piltar úr Umf. Reykjavíkur
glímur, undir stjórn Lárusar Salómonssonar. Þar er
efnilegur hópur glimumanna í uppsiglingu. Sýndu þeir
mörg og fjörleg brögð, sem margir höfðu gaman af
Nokkrir þeirra tóku þátt í kappglímunni, en aðrir eru
líklegir til að gera það síðar. Félagið hefur unnið ötul-
lega að glímukennslu undanfarin ár.
Eftir að allri glímu var lokið, hófst dans á pallin-
um og stóð hann til kl. 1 um nóttina, nema hvað hlé
var gert kl. 11, en þá fór fram afhending verðlauna
og mótslit. Þar var þá enn mikill mannfjöldi saman
kominn og alltaf fór veðrið batnandi.