Skinfaxi - 01.11.1949, Síða 32
96
SKINFAXI
an mótinu með ræðu. Þakkaði hann öllum, sem það
sóttu, íþróttafóllcinu sérstaklega, öllum, sem hefðu
unnið að undirbúningi mótsins, heimamönnum góða
fyrirgreiðslu, og bað mannfjöldann að lokum syngja:
Island ögrum skorið. Var rösklega tekið undir það.
Að lokum var hrópað ferfalt húrra fyrir fósturjörðinni.
Þegar hér var komið, var kl. rúmlega hálf tólf og
fóru því margir að búast til heimferðar, einkum hóp-
ar, sem langt áttu heim, eins og vestur á Snæfellsnes,
upp í Borgarfjörð og víðar. íþróttafólkið, sem lengst
átti, eins og Norðlendingarnir lögðu upp snemma næsta
morgun.
Lög-gæzla.
Mótið fór vel og prúðmannlega fram og ölvunar
gætti ekki verulega. Hinsvegar var öflug lögregla á
mótinu, sem fjarlægði tafarlaust þá, sem gerðust áber-
andi ölvaðir, enda var ölvun stranglega bönnuð og
svo er raunar einnig á almannafæri, samkvæmt lands-
lögum.
Þeir, sem ekki fóru tafarlaust í burtu, voru geymdir
í poka á þokkalegum stað, þar til ölviman var runnin
af þeim. Hlutu 11 þau örlög, hvorn dag. Löggæzluna
önnuðust ungir menn úr Árnessýslu, sem vanir eru
Iöggæzlu á samkomum þar eystra og hafa réttindi til
lögreglustarfa. Stjóm þessara mála annaðist Gísli
Bjarnason löggæzlumaður á Selfossi. Lögreglumenn-
irnir unnu verk sín með afbrigðum vel og áttu sinn
þátt í því, að mótið bar menningarblæ og varð ung-
mennafélögunum til vegsauka.
Niðurlag.
Landsmótið í Hveragerði er merkur íþróttaviðburð-
ur og athyglisverður þáttur í félagslífi þjóðarinnar.
Svo fágætur er slíkur mannfagnaður, þar sem 250
íþróttamenn sýna listir sínar, í frjálsíþróttum, sundi,