Skinfaxi - 01.11.1949, Page 41
SKINFAXI
105
of langt mál upp að telja allt, sem hann sýndi okkur,
T.d. væri lýsing á þinghúsinu efni í langa grein. —
Það er mál margra, að Helsingfors sé fegursti bær á
Norðurlöndum.
Að síðustu var okkur ekið að gistihúsi því, sem við
Pargas lýðháskóli.
áttum að dvelja í fyrstu nóttina í Finnlandi, sjö hæða
húsi, angandi af nýlökkuðum viði og stórhug. Kvöldið
óttum við frjálst og eyddum því til þess að sjá okkur
betur um í trjágörðum borgarinnar.
Morguninn eftir roguðust allir með sínar ferðatösk-
ur á járnbrautarstöðina og var nú förinni heitið til
Borgá eða Porvoo, eins og Finnarnir kalla bæinn. Þai
eru öll götunöfn ó tveimur málum, finnslui og sænsku,
og nærri helmingur íbúanna talar hvort málið.
Hér er borg Runebergs, og hér var mót hinna sænsk-
finnsku ungmennafélaga háð.
Formaður sænsk-finnsku ungmennafélaganna, fil.
mag. Henry Backman, fylgdi okluir að varða Rune-
bergs og talaði þar um skáldið og borgina og gamla