Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1949, Page 46

Skinfaxi - 01.11.1949, Page 46
110 SKTNFAXl munurinn ekki svo ýkja mikill. Fyrir þetta svar, og skrýtlurnar, sem hann sagði síðar, var liann nefndur mesti húmoristi mótsins. Svíarnir sungu og fluttu smá ræðu. Við tókum það ráð, að Dísa léki á píanóið íslenzk lög. Síðan sungu þau Vilhjálmur noklcur lög. Þá sagði Vilhjálmur nokkrar skrýtlur, og loks glímdum við Vilhjálmur nokkrar glímur, og var sú sýning talin óvæntasta og eftirminnilegasta atriði kvöldsins. Jónsmessuhátíð eða Miðsumarsvalta, Um miðjan dag fór stúlka frá Álandseyjum með hóp aðstoðarmanna með sér að undirhúa hátíðina, safna lyngi, trjágreinum og hlómum. Ur þessu voru hnýttir 5 stórir kransar og yfir 20 metra löng lilómskrýdd lyngflétta. Fyrir samkomunni stóð ungmennafélag héraðsins, og um kvöldið dreif fólkið að úr öllum átt- um. Þegar fjölmenni var saman komið var lagt af stað, með kransana á stöng og og hlómafléttuna á öxl- unum. Var það mikil skrúðganga. Niðri við ströndina hafði verið hlaðinn hálköstur. Þar rétt hjá var stöngin reist, efiir að fléttunni hafði verið vafið vandlega unl hana og krönsunum komið fyrir á þvertrjám. Á topp- inn voru sett 4 litil seglskip og sigldu þau í hring fyrir kvöldblænum. Þá var hátíðin sett. Fulltrúar frá hverju landi átti að halda stutta ræðu á móðurmáli sínu. Að því búnu hófst leikrit. Milli trjánna hafði verið komið fyrir leiktjöldum, bjálkakofa og hliði, að öðru leyti var leiksviðið skógar- rjóður, og því sjálfgert. Leikendur voru nærri 30, og þó maður skildi ekki orð, var furðanlega hægt að fylgj- ast með leiknum. Var vel leikið og tilþrif mikil. Bálið logaði glatt, og þegar leiknum lauk, var tekið til við dansinn. Dansstjórinn var danski presturinn Nils Ebbesen, snillingur í þeirri list, að kenna þannig,

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.