Skinfaxi - 01.11.1949, Page 47
SKINFAXI
slitið, en það atvikaðist svo, að við Stenbö lentum á
tal með nokkrum Finnum og stóðum þarna eftir í
klukkutíma. Þá var einhver svo hugulsamur að sækja
bekki og þá sátum við á annan tíma, og úr því var
sjálfsagt að bíða sólaruppkomunnar.
Jónsmessunæturstöngin.
að menn skemmtu sér. Um lágnætti var dansinum
Talið snerist eingöngu um alvarlega hluti, fortíð og
framtið, og átökin miklu, þar sem Norðmenn voru
kúgaðir af nazistum, en Finnar þá samherjar þeirra.
Jafnvel um þessa hluti er hægt að tala af hreinskilni,
vináttu og skilningi.
Ef þessara eiginleika hefði gætt ofurlítið meir, væru
þeir færri, Finnarnir og Rússarnir, sem hnigu fyrir
örlög fram. Og það er eins og næturkyrrðin hvísli
hendingum, ortum hinum megin á jarðkúlunni: