Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1949, Page 57

Skinfaxi - 01.11.1949, Page 57
SKINFAXl 121 fram, með nokkrum breytingum. Voru þær allar við 2. gr. lag- anna, orðalagsbreytingar og nokkur viðauki. Þá tók nefndin upp sinávægilegar breytingar á 5. gr. og 8. gr. Voru þær allar samþykktar samhljóða. Lögin verða birt annarsstaðar í þessu hefti, með áorðnum breytingum. II. íþróttamál. 1. Sambandsþingið telur, að íþróttaskólinn í Haukadal eigi að liljóta réttindi til að litskrifa kennara í islenzkri glimu, enda yrði sérstök reglugcrð sett þar um. Þá beinir þingið því til stjórnar U. M. F. í. að hún liafi samvinnu um kennsluskip- un skólans og styðji skólann á annan hátt eftir beztu getu. Jafnframt beinir þingið þeim tilmælum til ungmennfélaga al- mennt að þau notfæri sér skólastarfsemi þessa vel og vinni að því, að sem flestir áhugamenn í félags- og íþróttalífi Umf. eigi þess kost að sækja íþróttaskólann í Haukadal. 2. Sambandsþingið felur sambandsstjórn að beita sér fyrir því, að héraðssamböndin njóti aðstoðar héraðsskólanna við skipulagningu íþróttamálanna og kennslu í íþróttum. 3. Samþykkt var að kjósa þriggja manna nefnd til þess að vinna að samræmingu í kcnnslu vikivaka og útbreiðslu þeirra. 4. Sambandsþingið telur að skortur íþróttatækja hafi háð iþróttastarfseminni undanfarin ár. Beinir þingið því þeim til- mælum til stjórnar U. M. F. í. að hún vinni að því að héraðs- sambönd verði ekki afskipt með þau íþróttatæki, sem til Jandsins flytjast. 5. Skorað á sambandsfélögin að sjá vandlega um viðhald og endurbætur íþróttamannvirkja þeirra, sem þau hafa gert. (íþróttamálanefnd). 6. Samþykkt að beina þeim tilmælum til sambandsfélaganna, að þau beiti sér fyrir fjölbreyttari iþróttaiðkunum meðal kvenna og unglinga, (sérstaklega hópíþróttum og leikjum). (Stefán Ól. Jónsson). III. Skemmtanalífið. 1. Sambandsþingið skorar á öll Umf. að vanda sem bezt til dagskráratriða á samkomum sínum og bendir í þvi sambandi sérstaklega á leikstarfsemi, kvikmyndir, söng, bæði kórsöng og almennan söng ættjarðarljóða, einnig upplestur þeirra, vikivaka og fyrirlestra. Treystir þingið á þroska almennings til þess að meta skemmtanir, sem menningargildi hafa. Jafnframt þessu minnir þingið á skyldu Umf. við menning-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.