Skinfaxi - 01.11.1949, Síða 60
124
SKINFAXI
Skattur frá félögum ................................. — 9.000.00
Tekjur af Skinfaxa .................................. — 21.500.00
Kr. 105.372.19
Gjöld :
Reksturskostnaður ............................ kr. 10.000.00
Þingkostnaður .................................. — 6.000.00
Til íþróttamála ................................ — 50.000.00
— útgáfu Skinfaxa ............................ — 24.000.00
— skógræktar ................................. — 2.500.00
— bindindis- og útbreiðslumála ............. — 4.872.19
Óviss útgjöld .................................. — 8.000.00
Kr. 105.372.19
(Fjármálanefnd).
IX. Önnur mál.
1. Sambandsþingið lýsir ánægju sinni yfir setningu laga um
félagsheimili og telur þau marka tímamót í húsbyggingarmál-
um ungmennafélaganna. (Allsherjarnefnd).
2. Sambandsþingið telur nauðsynlegt að stofnaður sé og
starfræktur menntaskóli í sveit. (Eirikur J. Eiriksson).
3. Sambandsþingið felur ungmennafélögunum að annast út-
breiðslu Skinfaxa og innheimtu, hvert á félagssvæði sínu.
Skulu félögin halda skrá yfir kaupendur ritsins og láta stjórn
U.M.F.Í. í té áfrit af henni árlega. (Gísli Andrésson, Axel Jóns-
son).
4. Sambandsþingið samþykkir að halda 8. landsmót sitt að
Eiðum vorið 1952. (Daníel Ágústínusson).
Framangreindar ályktanir voim allar samþykktar með sam-
hljóða atkvæðum. Nokkrar tillögur og breytingartillögur voru
felldar. Umræður urðu yfirleitt miklar um flest málin. Fóru
prúðmannlega og drengilega fram, þótt skoðanamunur væri
stundum allmikill. Fundir hófust með söng ættjarðarljóða.
Árnaðar- og kveðjuskeyti bárust þinginu frá Stórstúku ís-
lands, Noregs Ungdomslag og Föroyja Ungmannafélag.
Þingið samþykkti að senda heiðursfélaga U.M.F.Í. Birni
Guðmundssyni, Núpi, heillaskeyti í tilefni 70 ára afmælis og
Benedikt G. Waage forseta Í.S.Í. vegna 60 ára afmælis. Risu
fundarmenn úr sætum þeim til heiðurs.
Stjórn U.M.F.l. var öll endurkjörin, en hana skipa: sr.
Eiríkur J. Eiriksson Núpi, sambandsstjóri, Daniel Ágústínus-
son Reykjavík, ritari, Daníel Einarsson Reykjavík, gjaidkeri,