Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1949, Side 61

Skinfaxi - 01.11.1949, Side 61
SKINFAXl 125 Gisli Andrésson Hálsi, varasambandsstjóri og Grimur Norð- dahl Reykjavik, meðstjórnandi. Varainenn: Haukur Jörunds- son, Hvanneyri og Stefán Ól. Jónsson, Reykjavík. Endurskoðendur voru kjörnir: Stefán Runólfsson, Rej'kja- vik og Teitur GuSmundsson, Móum, Kjalarnesi. í vikivakanefnd voru kosin: Grimur S. Norðdahl, Júlía Helgadóttir og Sigríður Valgeirsdóttir, öll búsett i Reykjavik. Til vara: Stefán Ól. Jónsson, Reykjavík. í þinglok kvaddi Jens Marinus Jensen sér hljóðs og ávarp- aði fundarmenn með snjöllu erindi. Drap á ýmis mál, er til umræðu voru á þinginu, gerði skemmtilegan samanburð á gamla og nýja tímanum og siðvenjum þeirra og þakkaði ánægjulega samveru. Sr. Eirikur J. Eiriksson þakkaði honum komuna og sagð- ist vona að honum auðnaðist að koma aftur til íslands og verða gestur U.M.F.f. Sambandsstjóri ávapaði síðan fundarmenn. Minntist gam- alla forvígismanna Umf. og starfs þeirra, að hugsjónamálum félagsskaparins. U.M.F.Í. myndi enn sem fyrr starfa í anda þeirra hugsjóna. Óskaði að eining mætti um það rikja og að ungmennafélagar gengju glaðir til starfs. Þakkaði að lokum forsetum þingsins og öðrum starfsmönnum, og fulltrúum góða fundarsókn og ánægjulegt samstarf. Ásgeir Eiríksson, fyrsti forseti þingsins, flutti síðan stutta ræðu. Minntist 40 ára starfs Umf. sem hefði verið sér, eins og svo mörgum öðrum, að ómetanlegu gagni. óskaði síðan full- trúum góðrar heimferðar og sagði 16. sambandsþingi U.M.F.Í. slitið. Fundir þingsins voru haldnir í hinum nýja og veg- iega skóla Ölfusinga i Hveragerði, en fulltrúar bjuggu i kvenna- skóla Árnýjar Filippusdóttur við rausn og frábæra umhyggju. Seinni þingdaginn bauð hreppsnefnd Hveragerðis fulltrúum lil kaffidrykkju í veitingahúsinu í Hveragerði og stjórnaði þvi liófi oddvitinn, Jóhannes Þorsteinsson. Þar voru margai ræður fluttar og var það fulltrúum til mikillar ánægju. D. Á.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.