Skinfaxi - 01.11.1949, Qupperneq 61
SKINFAXl
125
Gisli Andrésson Hálsi, varasambandsstjóri og Grimur Norð-
dahl Reykjavik, meðstjórnandi. Varainenn: Haukur Jörunds-
son, Hvanneyri og Stefán Ól. Jónsson, Reykjavík.
Endurskoðendur voru kjörnir: Stefán Runólfsson, Rej'kja-
vik og Teitur GuSmundsson, Móum, Kjalarnesi.
í vikivakanefnd voru kosin: Grimur S. Norðdahl, Júlía
Helgadóttir og Sigríður Valgeirsdóttir, öll búsett i Reykjavik.
Til vara: Stefán Ól. Jónsson, Reykjavík.
í þinglok kvaddi Jens Marinus Jensen sér hljóðs og ávarp-
aði fundarmenn með snjöllu erindi. Drap á ýmis mál, er til
umræðu voru á þinginu, gerði skemmtilegan samanburð á gamla
og nýja tímanum og siðvenjum þeirra og þakkaði ánægjulega
samveru.
Sr. Eirikur J. Eiriksson þakkaði honum komuna og sagð-
ist vona að honum auðnaðist að koma aftur til íslands og
verða gestur U.M.F.f.
Sambandsstjóri ávapaði síðan fundarmenn. Minntist gam-
alla forvígismanna Umf. og starfs þeirra, að hugsjónamálum
félagsskaparins. U.M.F.Í. myndi enn sem fyrr starfa í anda
þeirra hugsjóna. Óskaði að eining mætti um það rikja og að
ungmennafélagar gengju glaðir til starfs. Þakkaði að lokum
forsetum þingsins og öðrum starfsmönnum, og fulltrúum góða
fundarsókn og ánægjulegt samstarf.
Ásgeir Eiríksson, fyrsti forseti þingsins, flutti síðan stutta
ræðu. Minntist 40 ára starfs Umf. sem hefði verið sér, eins
og svo mörgum öðrum, að ómetanlegu gagni. óskaði síðan full-
trúum góðrar heimferðar og sagði 16. sambandsþingi U.M.F.Í.
slitið. Fundir þingsins voru haldnir í hinum nýja og veg-
iega skóla Ölfusinga i Hveragerði, en fulltrúar bjuggu i kvenna-
skóla Árnýjar Filippusdóttur við rausn og frábæra umhyggju.
Seinni þingdaginn bauð hreppsnefnd Hveragerðis fulltrúum
lil kaffidrykkju í veitingahúsinu í Hveragerði og stjórnaði
þvi liófi oddvitinn, Jóhannes Þorsteinsson. Þar voru margai
ræður fluttar og var það fulltrúum til mikillar ánægju.
D. Á.