Skinfaxi - 01.11.1954, Qupperneq 59
SKINFAXI
155
FRÉTTIR OG FÉLAGSMÁL
Nýtt UMS.
Hinn 24. maí var haldinn í Vík stofnfundur Ungmennasam-
bands Mýrdœlinga. AÖ stofnun þess stóðu þau fjögur ung-
mennafélög, sem starfandi eru í Mýrdal, Umf. Skarphéðinn
(form. Magnús Þórðarson), Umf. Kjartan Ólafsson (form.
Óskar Jóhannesson), Umf. Garðarshólmi (form. Gunnar Þor-
steinsson) og Umf. Kári Sölmundarson (form. Erlingur Sig-
urðsson). Samþykkt var, að sambandið gengi í UMFÍ, enda
voru flest félögin i því áður. Sambandið gekkst fyrir hátíða-
höldum 17. júní og iþróttamóti í ágúst, enda hafði iþrótta-
kennsla farið fram á vegum þess.
Stjórn sambandsins skipa: sr. Jónas Gíslason, Vík, formað-
ur, Sigþór Sigurðsson, Litla-Hvannni, Erlingur Sigurðsson,
Sólheimakoti, Óskar Jóhannesson, Ási og Ólöf Ólafsdóttir, Vík.
Ungmennasamband Mýrdælinga er 20. héraðssambandið
innan Ungmennafélags íslands. Við bjóðum það velkomið og
árnum því allra heilla.
Suomen Nuorison Liitto 75 ára.
Samband finnsku ungmennafélaganna, Suomen Nuorison
Liitto, minnist 75 ára afmælis síns með hátíðahöldum i Helsinki
1.—3_ júli í sumar. Ilefur UMFÍ verið boðið að senda full-
trúa þangað. Ef einhverjir ungmennafélagar liefðu áhuga á
og ástæður til að sækja hátiðina, ættu þeir að liafa samband
við skrifstofu UMFÍ sem allra fyrst.
Norræna mótið 1955.
Norræna æskulýðsmótið næstkomandi sumar verður haldið
dagana 5.—12. júní í Suður-Jótlandi. Dagana 5.—9. júní verð-
ur dvalizt í Sönderborg íþróttaskólanum, sem er norðan við
þýzku landamærin. Sönderborgskólinn er einn glæsilegasti
skóli Dana, nýiega byggður eftir ströngustu kröfum nútimans.
Ferðir til merkra staða í nágrenninu verða farnar. Dagana
9.—12. júní verður mótið í Suður-Slésvík. Þá verður ferðast til
margra merkra staða sunnan landamæranna. Dönsku ung-
mcnnafélögin sjá um mótið í samvinnu við dönsku ungmenna-
félögin í Suður-Slésvílc.