Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1979, Síða 29
— Hvernig veistu að jóla-
sveinninn er úr Þykkvabænum?
— Það eru tvær dyr og átta
gluggar á venjulegu húsi, en hann
skríður inn um strompinn.
Breti mætti Skota haltrandi á
einum skó á förnum vegi.
— Hvað kom fyrir, sagði Bret-
inn, — týndir þú öðrum skónum?
— Nei, svaraði Skotinn um hæl.
— Ég var að finna þennan.
— Hefurðu heyrt um Hafnfirð-
inginn, sem fer aldrei út með
konunni sinni?
— Mamma hans bannaði hon-
um að fara út með giftum konum.
Árið 1916 gerði Benjamin
Christensen kvikmyndina „Nótt
hefndarinnar". Þegar hann var að
safna sér leikurum í þessa mynd,
hitti hann Peter Fjeldstrup á veit-
ingahúsi og kallar strax til hans:
,,Ég hef hlutverk handa þér.
„Get ég leikið það?“
„Þú ert blátt áfram fæddur í
það. Ég sendi þér nokkrar lín-
ur . . .“
Eftir nokkra daga gat Fjeld-
strup sýnt meðleikendum sínum
bréf frá Christensen, hvar skrifað
stóð:
„Maðurinn, sem þú átt að leika,
er sífullur róni, ábyrgðarlaus
skepna, algert svín, aumasti
mannræfill . . .“
VÍKINGUR
29