Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Side 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Side 16
aðan rétt til Grænlands (m.a. á grundvelli hins foma landnáms Islendinga), en Noregur engan rétt. Norðmenn töpuðu þannig málinu. Danir sýndu Norðmönn- um hins vegar þá tillitssemi, að telja ekki, að þeir hefðu með framferði sínu, brotið samninginn frá 1924 og honum var ekki sagt upp, enda var hann gerður til 20 ára og síðan framlengdur í nokkur skipti eftir það. Síðast var samn- ingurinn framlengdur 31. júlí 1967 og skyldi þá gilda til 10 ára. Norðmenn leggja Jan Mayen undir sig. Það er ekkert vafamál, að samningurinn, sem Norðmenn og Danir gerðu árið 1924, var að verulegu leyti byggður á þeim samningi, er gerður var um Spits- bergen í París 1920 og stuðst hafði verið við þá samningsgerð á ýmsa lund. Óhætt mun vera að halda því fram, að íslensk stjórnvöld hafi vitað um báða þessa samn- inga, þegar Jón Þorláksson svar- aði danska utanríkisráðuneytinu með bréfi 27. júlí 1927, þar sem gerður er fyrirvari um rétt íslensku þjóðarinnar til jafns við aðrar þjóðir, og þar með Norðmanna sjálfra, líkt og var um rétt annarra þjóða til þess að nytja Spitsbergen til jafns við Norðmenn og rétt Norðmanna til að nytja A-Græn- land. í þessu ljósi er réttarstaða íslensku þjóðarinnar miklu sterk- ari en menn e.t.v. gera sér ljóst. Hinu er ekki að neita, að þegar Norðmenn leituðu til Dana um viðurkenningu á yfirráðum þeirra yfir Jan Mayen 1927, að þá hafi stjórnmálasamband milli Dan- merkur og Noregs verið mjög viðkvæmt, (Norðmenn að færa út kvíamar á A-Grænlandi). Danir hafa aftur á móti kosið að komast hjá illdeilum við Norðmenn út af Jan Mayen, nóg var samt fyrir af deilum þjóðanna. Utanríkis- ráðuneytið danska kaus því að láta ekki neitt opinskátt í málinu og látið íslendingum það algjörlega á vald. Einmitt það atriði, að Danir fóru þá með utanríkismál okkar, gerir aðstöðu okkar sterkari í dag, því að þeir — Danir — höfðu lokaorðið og þar við bættist að þeir áttu undir högg að sækja gagnvart Norðmönnum, og því bersýnilegt að þeir hafa ekki treyst sér til neins. Þessi hlið málsins veldur því, sem fyrr segir, að staða okkar er önnur og sterkari en ólöglærðir menn e.t.v. átta sig a. Yfirgangur Norðmanna Deilumál Dana og Norðmanna út af A-Grænlandi hafði þannig áhrif á afgreiðslu þessa máls hjá danska utanríkisráðuneytinu, og varpaði jafnframt nokkru ljósi á lyndiseinkunn þjóðanna tveggja: Yfirgangur Norðmanna, tilhneig- ing þeirra til landvinninga og yfirgangs gagnvart Dönum, svo aftur afstaða Dana, sem mótast af tillitssemi og friðarvilja. Fróðlegt væri að vita, hvemig Norðmenn hefðu brugðist við, ef þeir hefðu haft handritin íslensku í sínum fórum og krafa hefði komið fram frá okkur um að þeir skiluðu þeim aftur. — Norðmenn hafa alltaf verið að reyna að eigna sér heiðurinn af því að hafa klifið þann tind bókmennta, sem unnið var af forfeðrum okkar á sínum tíma og því er ótrúlegt að þeir myndu hafa verið fáanlegir til þess að skila handritunum og hvað þá heldur með glæsibrag og því heimsmeti á menningarsvið- inu, sem Danir settu um ókominn tíma með því að skila þeim í hendur íslensku þjóðinni. Svo eru menn í alvöru að tala um að hætta dönskukennslu í skólum okkar og taka upp norsku. Hvílik fásinna. — Þegar til þess er hugsað að við stöndum ævarandi í óbættri þakkarskuld við Dani út af hand- ritunum. Um norskuna er það annars að segja að hún er tvær mállýskur svokölluð nýnorska og bókmál, að öðru leyti ríkismál og landsmál. Norðmenn eru þar með ekki sjálfir á einu máli um hvaða mál eigi að heita norska. Frá því ég flutti hér í útvarpi fyrra erindið mitt um Jan Mayen-málið, hefur einn alþing- ismanna afhent mér að gjöf greinargerð um Jan Mayen-málið dags. 27. júlí 1979. Höfundur þeirrar greinargerðar er sá hinn sami og samdi greinargerðimar um landhelgismálið 1948 og 1970 sem vikið var að í síðasta erindi. Skoöun og viögeröir gúmmíbáta allt áriö. §§ GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN Eyjagötu 9 Örfirisey Stmt 1401« 16 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.