Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Page 29
en í staðinn kemur næringarríkur
sjór úr djúpunum. Það er svo
aukaatriði sem skiptir sáralitlu
máli hvað varðar döfnun plöntu-
svifsins, að þessi næringarríki
djúpsjór er ískaldur enda ættaður
sunnan úr íshöfum.
Því er íslenskur sjór
svo gjöfull?
Nú er hafsvæði kringum ísland
sérlega gjöfult, og framleiðni
plöntusvifsins tiltölulega mikil.
Mönnum hefur því ekki fundist
aðburður næringarefna með lóð-
réttum straumum, tilkomnum
vegna yfirborðskælingar (og -hit-
unar), nægjanleg skýring á hinni
miklu grósku. Jaðarsvæði kaldra
og hlýrra strauma eru mjög mik-
ilvæg. Þar myndast blöndunar-
svæði, er næringarefni úr djúpun-
um blandast efri sjávarlögum.
Talið er að hér komi að einhverju
leyti til Golfstraumurinn og Pól-
straumurinn sem skríða upp
landgrunnshlíðamar við sunnan-
og vestanvert landið og færa upp
næringarríkan djúpsjó. Þá hefur
enn eitt fyrirbæri verið nefnt til
sögunnar, en það eru svonefndar
djúpbylgjur, en hugsanleg áhrif
þeirra í þessa veru hafa þó lítt
verið könnuð. Eins og bylgju-
hreyfing getur myndast á mörkum
lofts og iagar (þ.e. á yfirborði
vatns), myndast öldur milli mis-
munandi vatnsmassa svo sem
missaltra sjávarlaga eða mis-
heitra. Slíkar bylgjur í skilum
mismunandi vatnslaga nefnast
innri bylgjur eða djúpbylgjur.
Menn verða slíkra bylgna ekki
varir nema með mælitækjum,
enda gætir þeirra í engu á yfir-
borði, sem getur þeirra vegna
verið slétt sem spegill. Miðað við
yfirborðsöldur, sem í mestu út-
hafsfárviðrum kunna að ná eitt-
hvað yfir 20 m hæð, eru djúp-
bylgjur risavaxnar eða allt að 100
m háar (jafnvel stærri), og er
öldulengdin þá tugir km. Þegar
VÍKINGUR
djúpbylgjur kenna grunns rísa
þær og brotna eins og yfirborðs-
bylgjur sem ríða að strönd. Slíkar
djúpbylgjur hafa mælst í hafinu
fyrir sunnan landið. Miklar líkur
eru á því að hið „þögl brim“ sem
gnauðar hér á landgrunnsbrún-
unum sunnan og vestan við landið
séu mikilvægur þáttur í blöndun
hafsins, sem leiðir af sér flutning
margumræddra efna úr djúpsjón-
um til efri laga sjávar.
Hvemig hagar plöntu-
svifið sér hér við land?
Nú fýsir menn sjálfsagt að vita
eitthvað um magn og útbreiðslu
plöntusvifsins hér við land ár
hvert, svo og hvenær það er í há-
marki. Þessu er afar erfitt að svara
í stuttu máli því margbreytileikinn
er mikill. Rannsóknir hafa sýnt að
gróðurauðugustu svæðin eru ein-
mitt við þau horn landsins þar
sem straumar mætast eða steyta á
brúnum og mynda blöndunar-
svæði: þar sem djúpsjór rennur
saman við yfirborðssjó. Þannig
eru svæðin útaf Homi, Vestra—
Homi, og Reykjanesi gróskumest
votra lendna við ísland. Almennt
má hins vegar segja að plöntu-
svifsframleiðslan sé mest upp við
landið, en fari smá þverrandi er
fjær því dregur.
Af rannsóknum á plöntusvifi
sem fram hafa farið á Hafrann-
sóknastofnuninni í meira en 20 ár
er vel ljóst, að mikil áraskipti geta
orðið á vorkomu gróðursins í
sjónum hér við land og þá um leið
frumframleiðninni. Ekki er til
einhlítt svar við því hvemig
stendur á þessum sveiflum milli
ára. Þó má segja til skýringar að
hafsvæðið kringum landið er
jaðarsvæði heitra og kaldra
strauma, en það er atriði sem ör-
ugglega veldur hér miklu um.
Rannsóknir hafa sýnt að gróður-
koma svifsins verður að jafnaði
fyrr í kalda sjónum norðan- og
austanlands en á öðrum stöðum
við landið, jafnvel um mánaða-
mótin apríl—maí. Gróðurkoma er
hins vegar að jafnaði ekki fyrr en í
seinni hluta maí við Suður- og
Vesturland og vestanvert Norður-
ÞORSKANET
FRÁ JAPAN
Infi þorskanetin frá Japan eru viöurkennd fyrir
mjúkleika og fiskisæld. Verðiö ótrúlega hagstætt
vegna hinnar miklu samkeppni frá öörum löndum.
Fyrirliggjandi á lager fjölgirni (kraftaverkanet) og
eingirni 7” og l'A”, garn No 9 — 10— 12 og 15.
Einnig blýtóg og færatóg.
Hringið og leitið upplýsinga áöur en þér verslið.
JÓN ÁSBJÖRNSSON,
útflutnings-og heildverslun.
Tryggvagata 10, Rvík. Símar: 11747 og 11748.
29