Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Side 36
vegna loðnuflotans. Bilun verður í
Hornbjargsvita (rafall, radíoviti
eða önnur tæki bila), eða matvæli
vantar. Sé um bilun að ræða
verður varðskipið að fara inn á
ísafjörð til að sækja viðgerðar-
menn. Þangað eru 86 sjómílur.
Siglingin frá ísafirði að Horni og
aftur til ísafjarðar til að skila
mönnunum, er 92 sml. Siglingin
frá ísafirði og út á Strandagrunn
er 86 sml. Þama hefur varðskipið
því siglt 264 sjómílur.
Matvæli væri eðlilegast að vita-
vörðurinn gæti tekið út af kost-
birgðum skipsins út í reikning.
Eins væri eðlilegast að vélstjóri
eða loftskeytamaður gerðu við
bilunina. Hvorir um sig hafa næga
þekkingu til þess. Hefði það verið
gert í þessu dæmi, þyrfti varð-
skipið aðeins að sigla 100 sml.; frá
Strandagrunni að Horni og aftur á
miðin. Mismunurinn er því 164
sml. eða 13 klst. sigling. Olíu-
eyðsla á klukkustund er 238 lítrar,
margfaldað með 13 verða það því
3094 lítrar. Hver gasolíulítri kost-
ar 210 krónur, þannig að þessi
krókur sem varðskipið hefur farið
að óþörfu kostar litlar 649.740
krónur, eða 6.497,40 nýkrónur.
— Hvað er það sem Árvakur
hefur framyfir önnur skip sem
Landhelgisgæslan hefur til um-
ráða?
— Það er nú ýmislegt, svarar
Höskuldur. Ef við höldum okkur
við það baujukerfi sem hér 'er
notað, þá er þar um að ræða svo
þung stykki að varðskipin hafa
engan lyftikraft í það. Árvakur
hefur 12 tonnalyftikraftogereina
skipið á landinu sem það hefur.
Auðvitað væri hægt að útbúa
varðskipin slíkum lyftibúnaði, en
það kostar mikla peninga. En auk
þess tel ég útilokað að annast
Vesturboðadufl eða duflið á
Ólafsboða og jafnvel fleiri á varð-
skipunum, vegna þess að þau eru
það djúprist og taka því mikið á
sig í straumi. Þarna er árstraumur
í hörðum föllum og við höfum
lent þar í stökustu vandræðum á
Árvakri og er hann þó miklu lið-
legra skip á allan hátt.
Árvakur hefur líka verið notað-
ur til að leggja minniháttar sæ-
strengi, svo sem yfir Arnarfjörð,
MARGARVQNIR
RÆTAST
Miði í happdrætti SÍBS gefur góða vinningsvon,
nær2/3hlutar veltunnar fara í vinninga, og meira
en f jórði hver miði hreppir vinning. Þar að auki á
hver seldur miði þátt í því að aðrar vonir rætist.
Vonir þeirra sem þurfa á endurhæfingu að halda
— endurheimta afl og heilsu með þjálfun og
störfum við hæfi. Árlega fá nær 600 manns
þjálfun og vinnu að Reykjalundi og 40 öryrkjar
starfa að jafnaði á Múlalundi. Og enn er átak
framundan: ný þjálfunarstöð að
Reykjalundi og nýtt húsnæði fyrir Múlalund.
Almennur stuðningur landsmanna er lykillinn að
árangursríku starfi SÍBS____
Happdrætti SÍBS
MIÐAVERÐ AÐEINS 2000 GKR. 20 NÝKR.
Hæsti vinningur 10 milljónir gkr., 100.000 nýkr.
36
Dýrafjörð, Berufjörð, og hann
lagði sæstreng þar sem hraunið
fór yfir við Vestmannaeyjar. Með
smá viðbótarhönnun á honum
ættum við ágætis kapalskip sem
ég sé ekki betur en við þurfum að
eiga. Allavega ætti það að vera
þjóðhagslega hagkvæmara heldur
en að fá skip erlendis frá í hvert
eitt sinn . . . fyrir nú utan það að
við grípum ekki kapalskip hvenær
sem við viljum.
Ef Árvakur verður seldur, sé ég
ekki annað en að við verðum að
endurnýja allt baujukerfi okkar.
En hvað kostar það? Við höfum
ekkert á reiðum höndum um það
hvaða baujukerfi hentar okkur.
Aftur á móti eru þessar baujur
búnar að vera hér áratugum sam-
an og hafa reynst vel og sjómenn
sætt sig við þær.
— En segjum sem svo að Ár-
vakur verði seldur. Megum við
missa eitt skip úr flota Landhelg-
isgæslunnar... eru ekki næg
verkefni fyrir hendi?
— Það mætti nú kannski sam-
ræma það, ég segi það nú ekki. En
þetta fer auðvitað allt eftir því
hvað stjórnvöld telja sig þurfa í
landhelgismálum. Það hef ég
hvergi heyrt. Undanfarin tvö
sumur hefur verið látið nægja að
hafa eitt til tvö varðskip á öllum
miðunum og ef það er stefna
stjómvalda í landhelgismálum . . .
ja, þá megum við alveg við því að
missa eitt varðskip.
Öryggisatriði að eiga
skip eins og Árvakur
— Hverja telur þú ástæðuna
fyrir því að menn vilji selja Árvak-
ur? Hvað liggur eiginlega að baki?
— Ég þekki ekki þá sögu í
smáatriðum. Það hefur heyrst að
þetta hafi forstjóri Landhelgis-
gæslunnar gert til að fá einhver
önnur atriði viðurkennd inn í
gæsluna. Árvakur er ekkert varð-
skip og verður aldrei, en maður
ætti nú að geta viðurkennt hann
VÍKINGUR