Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Blaðsíða 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Blaðsíða 45
hafði skuldbundið sig til að greiða hluta kaupverðs þegar skipið væri komið í nígeríska landhelgi, en þar sem hann þóttist aldrei nógu viss um komu okkar hummaði hann greiðslurnar fram af sér. Að þessari skoðun lokinni hófst tollafgreiðsla. Eintrjáningur með utanborðsvél flutti 6 dularfulla náunga um borð. Aðeins einn þeirra var einkennisklæddur og læddist að mér sá grunur, sem ég er enn ekki alveg laus við, að hann hafi fengið fötin lánuð. Þó að skipstjóri hafi útbúið sig sam- kvæmt alþjóðlegum handbókum ríflegum fjölda komuskýrslna dugði það hvergi. Vinirnir komu með eigin fjölrituð eyðiblöð sem varð að fylla út. Áður en af- greiðslu lauk sögðust þeir þurfa að fá sýnishom af farmi auk hefð- bundinnar smurningar sem er whiskyflaska og vindlingalengja á kjaft. Þegar þeir voru búnir að fá nokkrar spyrður og smurningana stimpluðu þeir og skrifuðu undir pappíra í óða önn og buðu síðan skip og skipshöfn velkomin til Nígeríu. Sá svissneski hafði sagt að við yrðum teknir upp til Port Harcourt mjög fljótlega. Það dróst samt á fimmta sólarhring. Á meðan var legið við akkeri. Sjóvökur voru staðnar og var háseti hafður á aukavakt á bakka. Mikill urmull eintrjáninga var á fljótinu, sumir að fiskveiðum, aðrir á ferð, sumir í viðskiptum, og að því þeir á Hvalvíkinni sögðu okkur, einstaka maður í ránsferð. Höfðu þeir orðið varir við innfæddan á leið upp akkeriskeðjuna hjá sér þegar þeir lágu þama. Tendruðum við öll tiltæk ljós og gerðum bátsverjum er nálguðust eftir myrkur ljóst að þeir væru hjartanlega óvelkomnir. Eina nóttina kom eintrjáningur upp að síðunni og vildi endilega hafa við okkur viðskipti. Hafði það frést um allt fljótt að skipið væri hlaðið hinni eftirsóttu vöru Bananakaupmenn hefur borið að garði og eru höfð vöruskipti við þá. Þeir sem sjást f.v. Ingvar Sigurðsson, Stefán A. Þórisson, Bjami Geirsson, Pétur Þormóðsson, Ólafur Þ. Jónsson og Reynir Valtýsson. (Mynd P.H.) skreið. Það var ekki fyrr en vakt- hafandi stýrimaður sýndi vininum byssu að hann hvarf á brott. Fyrir brottför að heiman hafði skipstjóri fengið hjá lögreglunni riffil og skammbyssu. Auk þess höfðu þeir Ómar 2. stýrimaður og Guð- mundur 2. vélstjóri með sér vold- ugar haglabyssur. Um ljósaskiptin voru á ferð á fljótinu vélknúnir eintrjáningar sem ferjuðu greiðviknar stúlkur út í skipin sem lágu þar. Voru þetta hinar girnilegustu stúlkur að sjá, en skipstjóri hafði lagt blátt bann við að þær fengju að koma um borð. Voru þær taldar bæði þjóf- óttar og kynsýktar. Var ýmist hvort þeim var hleypt um borð í þau 7—8 skip sem íágu fyrir utan Bonny þorp eða ekki. Á daginn var slangur bátafólks á fljótinu sem vildi selja okkur ban- ana og minjagripi. Ein fjölskylda heimsótti okkur daglega. Erindið var aðallega betl. Þau tóku einnig að sér að stinga sér í kolmórautt fljótið eftir bjór og gosflöskum er við hentum nálægt bát þeirra. Allt frá því við komum að Fair- way-bauju höfðum við kallað daglega í Bonny-merkjastöðina og spurt frétta. Svarið var alltaf hið sama: Því miður engar fréttir fyrir þig í dag. Hafðu samband við okkur á morgun. En þegar haft var samband við þá um hálf þrjú leyt- ið fjórum dögum eftir að við lögðumst svaraði merkjamaður- inn að lóðsinn kæmi um hádegið. Tæpra þriggja stunda sigling er frá Bonny þorpi til Port Harcourt. Lóðsinn kom um þrjú leytið og kjaftaði á honum hver tuska. Hann fræddi okkur um land og lýð milli þess sem hann sagði til um siglinguna. Þar sem við vorum nú staddir á landsvæði, sem með- an á borgarastyrjöldinni stóð rúmum 10 árum áður var kallað Biafra, lék mér forvitni á að vita urn stríðið sem íslendingar fylgd- ust svo vel með. Lóðsinn sem heitir S. O. Arrah en hefur kall- merkið A (pilot alfa) vildi sem minnst gera úr stríðinu og sagði að það hefði mest verið blásið upp í evrópskum fjölmiðlum. Sjálfur kvaðst hann aðspurður hafa búið í Lagos meðan á stríðinu stóð. VÍKINGUR 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.