Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Qupperneq 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Qupperneq 50
r Notuð voru löndunamet við losunina. (Mynd P.H.) vegna þjófa. Voru mannop lesta og geymsluhurðir rafsoðnar aftur. Urðu verkamenn að nota álstiga þegar þeir fóru niður í lestar og upp úr þeim meðan okkur var það stætt. Þó umboðsmaður sendi 3—5 næturvaktmenn sem sváfu mestan part nætur, þótti tryggast að setja háseta á vörð. Aðra nóttina okkar þar, rétt eftir sólarupprás, varð Bjarni Geirsson háseti var við að þjófar voru að brjóta upp gáma á bryggjunni. Sá hann ekki betur en 50 vopnuðu lögreglumennirnir sem venjulega voru á stjái ekki ýkja- fjarri höfðu fjarlægt sig. í gámun- um voru bíldekk. Þjófarnir rúll- uðu þeim beint í höfnina. Undan bryggjunni sem hvíldi á staurum kom bátur og hirti upp fenginn og fór með hann undir bryggjuna. Nokkrum dögum seinna, skömmu eftir sólarupprás, varð Björn Knútsson háseti sem var á verði var við menn á dekkinu sem voru að henda skreiðarböllum í höfnina milli skips og bryggju. Var áhöfnin vakin, en þegar menn komu á dekk voru þjófarnir horfnir. Sást að þeir höfðu sprengt upp voldugan lás á lestarmannopi. Var talið að þeir hefðu stolið 2—3 böllum. Síðar sama dag var balla hent af vörubílspalli í höfnina. Vegna beygju á bryggjunni gat skipið ekki legið þétt að. Strengd- um við net milli skips og bryggju, en vegna skorts á festingum í landi var á tveim stöðum bil á milli neta. Sá sem henti ballanum í höfnina fleygði sér á eftir honum og hvarf undir bryggjuna. Gerði lögreglan smá fjaðrafok út af þessu og handtók mann sem grunaður var um samvinnu við ræningjana. Eftir kvöldmat bentu innfædd- ur næturverðir okkur á vatnsgjálf- ur undan bryggjunni. Verkamenn sem unnu að losun skips fyrir aft- an okkur hópuðust á bryggjuna við skut Arnarfells. Söfnuðu þeir saman grjóti og létu ófriðlega. Um borð hjá okkur voru teknar fram tómar flöskur og öflugar hávaða- sprengjur. Ekki var ég samt viss um hvort grýta ætti okkur eða ræningjana. Eftir nokkra bið komu fjórir menn á einttrjánungi á fullri ferð undan bryggjunni. í sömu svipan köstuðu verkamenn- irnir á bryggjunni af heiftarafli grjóti í báísverja. Róbert yfirvél- stjóri var tilbúinn með hákarla- krækjuna og náði í fyrsta kasti að setja undir þóftu bátsins. Setti hann viðfesta línuna fasta. Báts- verjar hertu þá róðurinn. Ómar 2. stýrimaður var tilbúinn með háv- aðasprengju sem sprakk tveimur metrum yfir sjávarborði með feiknarhvelli. Skeði þetta allt á örfáum sekúndum. Ræningjarnir reyndu að bera höfuð fyrir höfuð sér en grjóthríðin og þríkrækja Róberts hafa komið þeim í skiln- ing um að staðan var vonlaus. Því hentu þeir sér í höfnina og syntu kafsund út á fljótið og hurfu sjón- um okkar. Rétt í því er þjófarnir höfðu lagst til sunds komu vopn- VÍKINGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.