Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1981, Page 58
BÆJAR-
ÚTGERÐ
REYKJAVÍKUR
Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu.
Sími: 24345 (5 línur)
Símnefni: BÚR
Telex: 2019
Útgerð:
Bv. Bjarni Benediktsson
RE210
Bv. Ingólfur Arnarson
RE 201
Bv. Snorri Sturluson
RE219
Bv. Hjörleifur
RE211
Bv. Jón Baldvinsson
RE 208
— Nú er liturinn á grásleppu-
hrognunum ærið misjafn. Hann
getur verið fjólublár, grænn og
grár og allt þar á milli, þótt aðal-
liturinn sé rauðleitur. Er til ein-
hver skýring á þessu?
— Nei, ekki önnur en sú að
þarna sé um einhvem einstakl-
ingsmun að ræða. En eftir að grá-
sleppan hefur hrygnt eru hrogna-
búin í sjónum yfirleitt með svip-
uðum lit, svona fölgulum blæ.
— Og þá er það þessi sígilda
spuming: Er hætta á ofveiði?
— Já og nei, svarar Vilhjálmur
og hlær við. Rannsóknir hafa leitt
í ljós að hrognkelsin sækja á sömu
svæði og þau hafa alist upp á á
fyrsta ári. Þar af leiðandi getum
við fengið staðbundna ofveiði þar
sem mikið er af netum ár eftir ár.
En svo eru líka önnur svæði við
landið sem eru lítið sem ekkert
nýtt. Þess vegna er ekki hægt að
segja að stofninn í heild sé í hættu,
heldur getum við sagt að of mikið
af netum sé á vissum svæðum, svo
sem í kringum Reykjavík, Akra-
nes og víðar. Aftur á móti eru
önnur svæði sem ekki nýtast
mönnum, eins og til dæmis
norðarlega á Ströndum. Þar er
það selurinn sem nýtir gráslepp-
una.
— Heldurðu kannski að selur-
inn drepi eins mikið af gráslepp-
unni og maðurinn?
— Ég skal ekki segja um það.
En selurinn tekur mjög stóran toll,
á því er enginn efi.
— Geturðu sagt mér í stuttu
máli eitthvað um lifnaðarhætti
grásleppunnar eftir að hún kemur
upp að landinu til hrygningar?
— Það virðist ljóst að hver grá-
sleppa stansar aðeins í fjörunni
rétt meðan á hrygningu stendur.
Síðari hverfur hún aftur út á dýp-
ið, ef hún sleppur við grásleppu-
netin, og lætur rauðmagann um
að gæta hrognanna. Grásleppan
er mikill einstaklingshyggjufiskur
og hver einstaklingur virðist fara
sínar eigin leiðir. Það er ekki alltaf
sem hún gengu á því dýpi sem
netin liggja á. Hún ferðastkannski
uppi í miðjum sjó, ofan við öll net
eða jafnvel í yfirborðinu. Við höf-
um fengið merkta grásleppu sem
veiddist á sama bletti og hún var
merkt á árið áður. Þá hafði hún
farið yfir hundruð neta, en stungið
sér niður á sama punktinn og hún
hrygndi á árið áður.
— Viltu nokkru spá um veiði-
horfur á komandi vertíð?
— Veiðin verður alltaf mis-
munandi eftir veiðisvæðum, en
þegar á heildina er litið er ekki
hægt að sjá annað en veiðin verði
svipuð og undanfarin tvö til þrjú
ár.
G.A.
Sjómenn — Útgerðarmenn
Umboðsmenn um land allt
BRUNABÓTAFÉLAGÍSLANDS
Sími 26055 (3 línur) - Laugavégi 103
58
VÍKINGÚR